Bolluát á bolludag

Stjórn nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga bauð nemendum upp á bollur í tilefni dagsins.

Á Íslandi hefur tíðkast í yfir hundrað ár að borða bollur á þessum degi og létu nemendur FSN ekki segja sér tvisar að fara og fá sér bollur í mötuneytinu þar sem stjórnin hafði útbúið gómsætt hlaðborð af ýmsu góðgæti til að setja á bollurnar.