Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, hefur óskað eftir því að láta af störfum í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga (FSN). Björg hefur setið í nefndinni frá stofnun skólans árið 2004 og hefur verið formaður hennar síðan 2013. Hún lætur nú af embætti bæjarstjóra og kveður því skólanefndina eftir 22 ára samfellt starf, en hún kom einnig að undirbúningi skólans allt frá árinu 2000.
Í bréfi sem Björg sendi mennta- og barnamálaráðherra þann 1. júní 2026 lýsir hún yfir þakklæti fyrir það traust sem henni hefur verið sýnt í gegnum tíðina. Hún segist hafa verið afar lánssöm að hafa fengið að fylgja skólanum frá fyrstu skrefum í undirbúningsnefndum sveitarfélaganna á árunum 2000–2004 og í skólanefnd frá stofnun skólans.
Óskabarn Snæfellinga
FSN hefur skipað stóran sess í starfsferli Bjargar. Í ávarpi sínu á 20 ára afmælishátíð skólans árið 2024 lýsti hún skólanum sem óskabarni Snæfellinga og hornsteini í héraði. Framhaldsskólinn varð til fyrir ákall, frumkvæði og samstöðu sveitarstjórnarfólks og íbúa, með það að markmiði að efla menntun og samfélag á Snæfellsnesi.
„Þetta var mikil og lærdómsrík vegferð,“ segir Björg um stofnunina. Hún bendir á að stofnun skólans hafi verið ein besta byggðaaðgerð sem um getur, þar sem hún hafi tryggt að ungt fólk gæti stundað nám í heimabyggð, sem aftur hafi aukið líkur á að það flytji aftur heim að loknu námi.
Þakkað fyrir framlagið
Skólameistari FSN, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, minntist einnig framlags Bjargar við útskriftarhátíð skólans 22. maí síðastliðinn. Þar var Björgu þakkað sérstaklega fyrir ómetanlegt starf sitt sem einn af helstu frumkvöðlum skólans og fyrir að hafa staðið þétt við bakið á skólanum allan tímann.
Björg Ágústsdóttir kveður nú skólanefndina með stolti yfir þeim árangri sem skólinn hefur náð á undanförnum tveimur áratugum. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að hlúa áfram að sérstöðu FSN, framsækni skólans og þeim gæðum sem hann hefur byggt upp í gegnum árin.
Skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga vill einnig koma á framfæri þökkum til Bjargar fyrir þau fjölmörgu störf í þágu skólans og samfélagsins alls. Hún hefur sýnt mikla elju og verið helsti baráttumaður fyrir Fjölbrautaskóla Snæfellinga frá upphafi. Hún hefur verið í forystu, sýnt ótrúlegan dugnað og látið verkin tala. Það verður mikill missir að hennar ómetanlega framlagi. Björg hefur einnig verið einstakur samstarfsfélagi og réttsýn.
---