Bjargráður í heimsókn í FSN

Nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Snæfellinga fengu góða heimsókn frá Bjargráði, félagi læknanema um endurlífgun og skyndihjálp, í tengslum við nám sitt í lýðheilsu.

Læknanemarnir fræddu nemendur um helstu atriði skyndihjálpar, mikilvægi skjótra viðbragða í neyðartilvikum og hvernig rétt viðbrögð geta skipt sköpum þegar á reynir.

Nemendur sýndu heimsókninni mikinn áhuga, tóku virkan þátt í umræðum og spurðu fjölmargra spurninga. Að fræðslunni lokinni fengu þau svo tækifæri til að spreyta sig á hjartahnoði á sérstökum endurlífgunardúkkum og prófa þannig í verki það sem þau höfðu lært.

Heimsóknin var bæði fróðleg og skemmtileg og gaf nemendum dýrmæta innsýn í mikilvægi þess að kunna fyrstu viðbrögð og geta brugðist við þegar mest á reynir.

Við þökkum Bjargráði kærlega fyrir komuna og frábæra fræðslu!

Hér má sjá myndir