Árshátíð NFSN

Það er rétt að segja frá því að Nemendafélag FSN hélt vel heppnaða árshátíð á miðvikudag 16.mars. Nemendur og starfsfólk komu saman í sal skólans og snæddu dýrindis kvöldmáltíð frá Kaffi 59. Veislustjórar voru þeir Vignir Steinn Pálsson og Örvar Sigurðsson en þeir eru báðir útskrifaðir héðan frá FSN. Að lokinni skemmtun í skólanum fóru nemendur á dansleik í samkomuhúsi Grundarfjarðar og voru nemendur þar til fyrirmyndar.