Nýnemadagur og forráðamannafundur

Fyrsti kennsludagur nýnema:

Nýnemar mæta á sérstakan kynningardag, nýnemadag, mánudaginn 17. ágúst kl. 10:00. Þar verður farið yfir helstu þætti skólastarfsins.

Það verða rútur í boði FSN á nýnemadaginn. Nemendur geta keypt rútukort í FSN. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans.

Nemendur þurfa að vera með rafræn skilríki og fartölvur. Allt nám fer fram í tölvu og eru þeir nemendur sem eiga fartölvur beðnir um að koma með þær.

Skólasetning og fyrsti kennsludagur:

Skólasetning og fyrsti kennsludagur á haustönn 2026 er þriðjudagurinn 18. ágúst kl. 08:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundatöflu.

Forráðamenn nýnema verða boðaðir á sérstakan kynningarfund 17. ágúst klukkan 17:30 í FSN.

Athygli er vakin á því að á vef skólans, www.fsn.is er að finna margvíslegar upplýsingar um skólann. FSN er á instagram og facebook.