Nýnemadagur 18.ágúst

Nýnemar (nemendur sem útskrifuðust úr 10. bekk grunnskóla nú í vor):

Nýnemar mæta á sérstakan kynningardag, nýnemadag, þriðjudaginn 18. ágúst kl. 10:30. Þar verður farið yfir helstu þætti skólastarfsins. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru beðnir um að koma með þær. Endilega vera búin að ná sér í íslykil eða rafræn skilríki.

Gert er ráð fyrir að dagskrá nýnemadags ljúki um kl. 13:00.

Nemendur í framhaldsdeildinni á Patreksfirði mæta á nýnemadag í deildina á Patreksfirði kl. 10:00.