Um skólann
Undirbúningur að stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Síðast breytt: 27. febrúar 2012
Fjölbrautaskóli Snæfellinga tók til starfa 30. ágúst 2004 og var þá settur í fyrsta skipti. Á haustönn 2004 voru um 115 nemendur í skólanum. Á vorönn 2012 eru 215 nemendur skráðir í námi.
Í febrúar 2003 var tekin ákvörðun í menntamálaráðuneyti um að stofna framhaldsskóla á Snæfellsnesi. Auk ríkisins eru stofnaðilar sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi, Stykkishólmsbær, Snæfellsbær, Helgafellssveit og Grundarfjarðarbær. Einnig var ákveðið að skólinn skyldi vera leiðandi á tveimur sviðum; í breyttum kennsluháttum og í nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi. Undirbúningsstarf hófst í lok mars það ár og var Hrönn Pétursdóttir ráðin verkefnistjóri. Fjölmargir komu að undirbúningsvinnunni bæði heimamenn og aðrir. Þar má nefna hóp foreldra, nemenda og annarra sem unnu í hópum sumarið 2003 ásamt kennurum og skólastjórnendum víðs vegar af landinu og starfsmönnum ráðuneytisins að því að þróa og útfæra hugmyndir um breytta kennsluhætti og nýtingu upplýsingatækni. Fyrir tilstilli menntamálaráðuneytisins var fenginn erlendur arkitekt, Susan Stuebing, sem hefur sérhæft sig í að hanna skóla sem byggja á nýjum hugmyndum um nám og kennslu. Susan stjórnaði hugmyndavinnunni og veitti arkitektum skólans, VA arkitektum, ráðgjöf varðandi frumhönnun skólahússins.
Skólinn er hannaður með það fyrir augum að hann þjóni sem best því skipulagi sem er á skólastarfinu. Litið er á hin ólíku rými í skólanum sem námssvæði. Þar geta nemendahópar unnið undir stjórn kennara, unnið verkefni einir eða í hópum með eða án aðstoðar kennara. Fylgst með fyrirlestri frá kennara sem er á staðnum eða miðlar fyrirlestrinum í gegnum netið.
Margir aðrir komu að undirbúningi og þar má nefna hóp ráðuneytisstarfsmanna í menntamálaráðuneyti sem var verkefnisstjóra til halds og trausts og hóp tæknifróðra manna úr skólakerfinu sem fengnir voru til að meta þarfir skólans í tæknimálum.
Skólanefnd var stofnuð í nóvemer 2003 og skólameistari ráðinn frá 1. janúar 2004, en hann hefur, ásamt skólanefnd, stjórnað undirbúningsstarfinu frá því að hann kom til starfa. Foreldraráð var stofnað í september 2009.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hóf rekstur framhaldsdeildar á Patreksfirði haustið 2007. Rekstur deildarinnar var í upphafi þróunarverkefni til 4 ára. Í framhaldsdeildinni geta nemendur af suðursvæði Vestfjarða stundað nám á framhaldsskólastigi undir stjórn kennara í Grundarfirði með aðstoð fjarfunda, kennsluvefsins Moodle, sms-samskipta og Skype funda. Tveir starfsmenn framhaldsdeildar á Patreksfirði veita nemendum leiðsögn á staðnum og halda utan um starfsemina. Nemendafjöldi deildarinnar hefur aukist jafnt og þétt frá upphafi, eða frá því að vera 12 nemendur haustið 2007 í að vera ríflega 30 nemendur á haustönn 2009 og á haustönn 2011. Í nóvember 2009 var gerð skýrsla um starfsemi deildarinnar til kynningar á verkefninu, sem þá hafði starfað í 2 ár. Attentus, mannauður og ráðgjöf gerði úttekt á starfsemi deildarinnar haustið 2010.
Nám og kennsla í framhaldsdeildinni byggir á aðferðum dreifmenntar, en almennt má segja að dreifmennt sé góður kostur til að brúa bil milli landshluta og gera einstaklingum kleift að stunda það nám sem þeir kjósa sér hvar sem þeir eru staddir. Sjálfstæði í námi er oft meira þar sem nemendur vinna oft án beinnar tilsagnar kennara og þurfa því að taka mikla ábyrgð á eigin námi.
Skólameistarar:
Guðbjörg Aðalbergsdóttir: 2004 -2008
Skúlína Hlíf Kjartansdóttir: 2009-2010
Jón Eggert Bragason: 2010
Aðstoðarskólameistari:
Pétur Ingi Guðmundsson: 2004
Skólanámskrá
Á þessum vef eru birt drög að skólanámskrá skólans en hún verður unnin áfram í samstarfi kennara, nemenda og stjórnenda á næstu önnum.