Jafnréttisstefna

Jafnréttisstefna Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðast breytt: Í vinnslu í febrúar 2011

Jafnréttisstefna Fjölbrautaskóla Snæfellinga er mótuð í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 og jafnrétti í víðara samhengi. Markmið hennar er að stuðla að jafnrétti kynja í skólanum, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan skólans, ennfremur til að minna stjórnendur, nemendur og starfslið skólans á mikilvægi þess að allir fái notið hæfileika sinna án tillits til kynferðis, litarháttar, þjóðernis eða annarra þátta.

Fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur í heiðri þau gildi að mikilvægt sé að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu, starfshæfni og viðhorfum allra starfsmanna og nemenda. Í öllu starfi skólans skal markvisst unnið gegn viðhorfum sem leiða til hverskonar aðstöðumunar.

Í 26. grein laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla segir að kynjum skuli ekki mismunað í skólum og öðrum uppeldisstofnunum og skuli þess gætt að í námi og kennslu, starfsháttum og daglegri umgengni við nemendur. Námsefni skal og vera með því móti að í engu sé kynjum mismunað. Kveðið er á um fræðslu um jafnréttismál á öllum skólastigum og að leitast skuli við að draga úr kynjaskiptu námsvali. Í jafnréttislögunum er ennfremur kveðið á um að í náms- og starfsfræðslu og við ráðgjöf í skólum skuli leitast við að kynna bæði piltum og stúlkum störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin kvenna- eða karlastörf. Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna verða að vera gildur þáttur í starfsmannastefnu skólans.

Fjölbrautaskóli Snæfellinga leggur áherslu á eftirfarandi:

Samvinnu og sjálfstæði kynja:
Í skólastarfinu skal lögð áhersla á að efla sjálfstæði og sjálfsvirðingu beggja kynja. Áhersla er lögð á að nemendur njóti alhliða menntunar og fái hvatningu til náms í samræmi við þroska og áhuga hvers og eins. Leitast verður við að haga kennsluaðferðum þannig að kynjum sé ekki mismunað á nokkurn hátt.

Að tryggja jafna aðstöðu kvenna og karla til náms:
Rannsóknir sýna að munur er á strákum og stelpum hvað varðar áhuga og hæfni á ýmsum viðfangsefnum í skólastarfi. Mikilvægt er að kennarar séu meðvitaðir um þessa þætti og taki tillit til þeirra. Í skólastarfinu skal lögð áhersla á að höfða til eiginleika hvers einstaklings í hópnum fremur en kynja. Mikilvægt er að þjálfa samvinnuhæfni og hlúa að tillitssemi til að auðvelda unglingunum að starfa í blönduðum hópum. Brýnt er að berjast gegn fordómum sem hafa stuðlað að misrétti kynja.

Launajafnrétti:
Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun fyrir sams konar vinnu og skulu þau njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf . Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár sbr. 14 gr. laga nr. 96/2000 og gildandi kjarasamninga hverju sinni.

Auglýsingar/stöðuveitingar:
Í auglýsingum eru störf jafnan ókyngreind og þess gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð auglýsinga. Ef skólameistari vill stuðla að jafnari kynjaskiptingu meðal starfsfólks getur hann auglýst sérstaklega eftir því kyni sem hallar á. Þá þarf að koma fram að markmiðið sé að jafna hlut kynjanna. Jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar. Stefnt er að því að halda sem jöfnustu hlutfalli kynjanna í þeim störfum sem tilheyra rekstri skólans. Þess skal gætt við úthlutun verkefna, tilfærslu í störfum, tækifæra til að axla ábyrgð og framgangs í störfum að einstaklingum sé ekki mismunað vegna kynferðis.

Starfsþjálfun/endurmenntun:
Tryggt verði að konur og karlar njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið sem haldin eru til að auka hæfni í starfi eða undirbúnings öðrum störfum.

Hið gullna jafnvægi í verki (samræming fjölskyldulífs- og starfs/náms):
Stefnt skal að því að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið.

Starfsandi og líðan starfsfólks og nemenda:
Lögð skal áhersla á góða líðan starfsfólks og nemenda og góðan starfsanda í skólanum. Allt starfsfólk og nemendur eiga rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það sæti ekki áreitni af neinu tagi.

Jafnréttisáætlun Fjölbrautaskóla Snæfellinga skal metin og endurskoðuð á tveggja ára fresti.



 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur