Starfsbraut
Nám á starfsbraut FSN
Starfsbraut Fjölbrautaskóla Snæfellinga er fyrir nemendur sem hafa hlotið verulega sérkennslu í grunnskóla og hafa ekki forsendur til að stunda nám á öðrum brautum skólans. Um er að ræða fjögurra ára nám samkvæmt námskrá starfsbrautarinnar. Nemendur brautarinnar eiga möguleika á að stunda nám í almennum áföngum. Sjá nánar:
- 19.gr. laga um framhaldsskóla nr.80/1996.
- 2.gr. laga um málefni fatlaðra nr.59/1992.
- Reglugerð um kennslu fatlaðra í framhaldsskólum nr.372/1998
- Námskrá fyrir sérdeildir framhaldsskóla, starfsbrautir.
Innritun nemenda á starfsbraut árið 2010 á sér stað frá 18.janúar til 26.febrúar. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna. Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri starfsbrautar. Sótt er um á sérstökum eyðublöðum.
Nám
Á starfsbraut skólans er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, þar sem námsefnið er sniðið við hæfi og getu hvers og eins nemanda. Kennt er eftir einstaklingsnámskrá þar sem lögð er áhersla á sterku hliðar einstaklingsins og þær virkjaðar. Námsþættir eru sniðnir að þörfum og úthaldi nemenda. Námið á starfsbraut er bæði bóklegt og verklegt. Bóklega námið er byggt upp sem undirbúningur fyrir atvinnulífið og þar er mikið lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum og stuðlað að auknu sjálfstæði einstaklingsins í athöfnum daglegs lífs. Mikil áhersla á að nemendur starfsbrautarinnar einangrist ekki, heldur séu hluti af skólanum.
Markmið náms á starfsbraut Fjölbrautaskóla Snæfellinga:
- að stuðla að alhliða þroska nemandans. - að nemendur fái einstaklingsmiðuð námstækifæri.
- að auka sjálfstraust, sjálfstæði og samskiptahæfni nemenda til daglegra athafna.
- að nemendur auki og efli vinnufærni sína - að nemendur fái tækifæri til að kynnast námi og/eða starfi við hæfi
Helstu námsþættir starfsbrautar:
- bóklegar greinar
- list- og verkgreinar
- heilsurækt
- lífsleikni
- starfsnám í skóla og á vinnustað/fyrirtækjaheimsóknir
Kennsluaðferðir
Á starfsbraut geta verið ólíkir einstaklingar og því þurfa kennsluaðferðir að vera það. Hver nemandi er með einstaklingsnámsskrá sem unnið er eftir. Fyrirkomulag kennsluaðferða er mjög breytilegt og því geta aðferðir verið í formi einstaklingskennslu, sýnikennslu, hlutverkaleiks, hópkennslu og verklegs náms.
Námsmat
Samkvæmt kaflanum um sérdeildir í Aðalnámsskrá framhaldsskóla er megintilgangur einstaklingsmats að:
- Afla upplýsinga sem gefa vísbendingar um hæfileika og þekkingu nemandans
- Beina sjónum að því hvernig nemandinn nýtir sér hæfileika og þekkingi sína
- Gera grein fyrir getu nemandans til að fylgja þeim kennslumarkmiðum sem skigreind voru með námi hans
- Styrkja sjálfsmat nemandans og auka vitneskju hans um það hvernig og hvað honum gengur best að læra, við hvað hann þarf aðstoð og hvernig hann tekst á við sínar veiku hliðar
Námsmat er tæki sem á að nota til að sjá hvort settum markmiðum hefur verið náð og fer valið eftir einstaklingnum sem meta skal.