Hlutverk og stefna

Hlutverk og stefna Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðast breytt: 13. desember 2006

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er framhaldsskóli með áfangasniði sem vill skipa sér í fremstu röð og hefur það markmið að veita öllum nemendum góða menntun.

Hlutverk skólans er að;

  • stuðla að alhliða þroska nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi
  • búa nemendur undir störf í atvinnulífinu og frekara nám
  • efla ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðarlyndi nemenda
  • þjálfa nemendur í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun
  • kenna nemendum að njóta menningarlegra verðmæta
  • hvetja nemendur til stöðugrar þekkingarleitar.

Markmið skólans er að skapa metnaðarfullt námsumhverfi þar sem komið er til móts við þarfir hvers og eins með sveigjanlegu skipulagi. Við leggjum áherslu á persónuleg samskipti starfsfólks og nemenda og að nemendur mæti ávallt alúðlegu viðmóti.

Fjölbrautaskóli Snæfellinga starfar í umhverfi sem hefur markað sér stefnu í umhverfismálum og stefnir að vottun samkvæmt Green Globe. Umhverfisstefnu skólans má nálgast hér.

Skólinn leggur áherslu á að byggja upp öflugt og heilbrigt félagslíf nemenda um leið og unnið er markvisst að forvörnum. Í þessu skyni hefur skólinn sett fram forvarnastefnu og hefur auk þess sett sér nákvæmar vinnureglur er varða eftirlit á samkomum og ferðum á vegum skólans.

Skólinn leitast við að gæta jafnréttis á öllum sviðum og að skapa jákvætt samfélag fyrir starfsfólk og nemendur. Með þetta markmið í huga hefur skólinn sett sér sérstaka jafnréttisstefnu.



 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur