Um skólann
Undirbúningur að stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Síðast breytt: 1. febrúar 2010
Í febrúar 2003 var tekin ákvörðun í menntamálaráðuneyti um að stofna framhaldsskóla á Snæfellsnesi. Auk ríkisins eru stofnaðilar sveitarfélög á norðanverðu Snæfellsnesi, Stykkishólmsbær, Snæfellsbær, Helgafellssveit og Grundarfjarðarbær. Einnig var ákveðið að skólinn skyldi vera leiðandi á tveimur sviðum - í breyttum kennsluháttum og í nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.
Undirbúningsstarf hófst fljótlega og í lok mars var Hrönn Pétursdóttir ráðin verkefnistjóri til að stýra undirbúningnum. Mjög margir komu að undirbúningsvinnunni bæði heimamenn og aðrir. Þar má nefna hóp heimamanna bæði foreldra, nemendur og fleiri sem unnu í hópum sumarið 2003 ásamt kennurum og skólastjórnendum víðs vegar af landinu og starfsmönnum ráðuneytisins að því að þróa og útfæra hugmyndir um breytta kennsluhætti og nýtingu upplýsingatækni. Fyrir tilstilli menntamálaráðuneytisins var fenginn erlendur arkitekt, Susan Stuebing, sem hefur sérhæft sig í að hanna skóla sem byggja á nýjum hugmyndum um nám og kennslu. Susan stjórnaði hugmyndavinnunni og veitti arkitektum skólans, VA arkitektum, ráðgjöf varðandi frumhönnun skólahússins.
Skólinn er hannaður með það fyrir augum að hann þjóni sem best því skipulagi sem verður á skólastarfinu. Það má nefna að litið er á öll hin ólíku rými í skólanum sem námssvæði þar sem ýmist geta verið nemendahópar í vinnu undir stjórn kennara, nemendur að vinna verkefni einir eða í hópum með eða án aðstoðar kennara eða nemendahópar að fylgjast með hefðbundnum fyrirlestri frá kennara, sem annað hvort er á staðnum eða miðlar fyrirlestrinum í gegnum eitthvert form upplýsingatækninnar.
Margir aðrir komu að undirbúningi og þar má nefna hóp ráðuneytisstarfsmanna í menntamálaráðuneyti sem var verkefnisstjóra til halds og trausts og hóp tæknifróðra manna úr skólakerfinu sem fengnir voru til að meta þarfir skólans í tæknimálum.
Skólanefnd var stofnuð í nóvemer 2003 og skólameistari ráðinn frá 1. janúar 2004, en hann hefur, ásamt skólanefnd, stjórnað undirbúningsstarfinu frá því að hann kom til starfa. Foreldraráð var stofnað í september 2009.
Skólameistari árin 2004-2008 var Guðbjörg Aðalbergsdóttir og aðstoðarskólameistari, Pétur Ingi Guðmundsson, kom til starfa 1. apríl 2004. Núverandi skólameistari er Skúlína Hlíf Kjartansdóttir.
Skólinn tók til starfa 30. ágúst 2004 og þá var hann settur í fyrsta skipti. Á haustönn 2004 voru um 115 nemendur í skólanum. Á haustönn 2009 voru 282 nemendur skráðir til náms.
Skólanámskrá
Á þessum vef eru birt drög að skólanámskrá skólans en hún verður unnin áfram í samstarfi kennara, nemenda og stjórnenda á næstu önnum.