Fréttir
Viðbragðsáætlun Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Heimsfaraldur inflúensu A(H1N1)v sem er í gangi um þessar mundir er tiltölulega vægur og skólahald er með eðlilegum hætti. Nánari upplýsingar um faraldurinn má fá á vef landlæknisembættis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra - www.influensa.is. Upplýsingar um hvernig verjast má smiti má fá í leiðarvísi landlæknisembættis - Fimm leiðir til að forðast flensuna.
Fulltrúar heilsugæslu mæla með því að nemandinn verði heima í 7 daga ef flensueinkenni gera vart við sig. Einkenni inflúensu eru:
Hiti
Hálssærindi
Hósti
Hnerri
Beinverkir
Höfuðverkur
Almenn meðferð er hvíld, drekka ríkulega af vökva og notkun hitalækkandi verkjalyfja (t.d. paracetamól) eftir þörfum og í samræmi við leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Nemandi með einkenni inflúensu ætti að hafa samband við heilsugæslustöðina í sínu bæjarfélagi ef veikindi vara í 3 daga eða lengur – og fá vottorð sem skila þarf til skólans. Til að fá vottorð verða allir nemendur að mæta hjá lækni til skoðunar á heilsugæslustöðvum í Grundarfirði-Ólafsvík-Stykkishólmi, til að greina hvort um inflúensu sé að ræða. Tekið er á móti hugsanlega sýktum á öðrum tíma en venjulegri móttöku og allir munu komast að samdægurs.
Stefnt er að því að skólastarf raskist sem minnst þrátt fyrir veikindi – og er kennurum og nemendum bent á að nýta sér nám og kennslukerfi til að sinna námi og kennslu í heimadvöl.