Fréttir
Skólasetning í FSN
21.ágúst 2009
Það er okkur mikið ánægjuefni að margir vilja koma hingað til náms og það sýnir áhuga á starfi skólans og því námi sem hér er í boði.
Starfsemi skólans verður um margt með sama sniði og verið hefur undanfarin ár. Þó hefur verið ákveðið að breyta aðeins til hvað varðar skipulag og skólareglur. Stundatöflur nemenda eru nú samfelldari en áður, með föstum tímum og vinnustofum sem mæta þarf í með reglulegum hætti. Við munum byrja morgnana á því að setjast í vinnustofur í hálftíma til að skipuleggja daginn og síðan borða kennarar og nemendur morgunmat saman í matsal. Því næst taka við fastir tímar og fleiri vinnustofur sem skiptast á yfir daginn.
Við bjóðum nýtt starfsfólk velkomið til starfa. Nú hefja störf 4 nýjir kennarar, þeir eru Aðalsteinn Einar Eymundsson, kennari í viðskiptagreinum og stærðfræði – Erna Guðmundsdóttir, kennari í íslensku - Hilmar Guðlaugsson, kennari í ensku - og Steingrímur Gunnarsson, kennari í spænsku. Þá bætast í hópinn 2 stuðningsfulltrúar, Hafsteinn Már Sigurbjörnsson og Ólafur Ingi Bergsteinsson, sem starfa við Starfsdeild skólans.
Nýjir Nýir aðilar taka við mötuneyti skólans í ár – það er fyrirtækið Hollt í hádeginu, sem mun bjóða upp á morgunmat og máltíðir í hádeginu.