Fréttir

Fréttir af útskrift í Fjölbrautaskóla Snæfellinga vor 2009.

27.5.2009

utsrift

Laugardaginn 23. maí lauk Fjölbrautaskóli Snæfellinga sínu fimmta starfsári og útskrifaði 11 nemendur, með stúdentspróf.

Laugardaginn 23. maí lauk Fjölbrautaskóli Snæfellinga sínu fimmta starfsári og útskrifaði 11 nemendur, með stúdentspróf. Átta nemendur af ellefu kláruðu námið á aðeins þremur árum. Af náttúrufræðibraut útskrifuðust þær Auður Kjartansdóttir, Ingibjörg Stefanía Eiðsdóttir og María Björnsdóttir. Af félagsfræðabraut útskrifuðust Diljá Dagbjartsdóttir, Eyjólfur Fannar Sch. Jónsson, Hafdís Lilja Haraldsdóttir, Heiða María Erlingsdóttir, Jón Sindri Emilsson, Kamilla Rún Gísladóttir og Sunna Guðný Högnadóttir. Einn nemandi útskrifaðist með viðbótarnám til stúdentprófs, Jónína Herdís Björnsdóttir.

Hæstu einkunn á stúdentsprófi deildu þær Auður Kjartansdóttir og María Björnsdóttir og fengu þær veglega bókagjöf frá Stykkishólmsbæ. Auður hlut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í spænsku sem Fjölbrautaskóli Snæfellinga gaf og fyrir góðan árangur í stærðfræði fékk hún tvenn verðlaun, annars vegar gefin af Kaupþingi og hins vegar af íslenska stærðfræðifélaginu. María Björnsdóttir hlaut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í raungreinum gefin af gámaþjónustu Vesturlands og verðlaun fyrir góðan árangur í íslensku sem Grundarfjarðarbær gaf. Hafdís Lilja Haraldsdóttir fékk einnig verðlaun. Fyrir góðan árangur í íslensku, einnig gefin af Grundarfjarðarbæ og tvenn verðlaun fyrir góðan árangur í ensku, annarsvegar gefin af Snæfellsbæ og hinsvegar af Kanadíska sendiráðinu. Fyrir góðan árangur í þýsku fékk Kamilla Rún Gísladóttir verðlaun gefin af Helgafellssveit ásamt verðlaunum fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum gefin af Kaupþingi. Fyrir góðan árangur í félagsgreinum fékk Diljá Dagbjartsdóttir verðlaun og voru þau gefin af Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Einnig fengu fjórir nemendur verðlaun fyrir góðan árangur í dönsku en það eru þær, Auður Kjartansdóttir, Diljá Dagbjartsdóttir, María Björnsdóttir og Sunna Guðný Högnadóttir og voru verðlaunin gefin af danska sendiráðinu og Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Útskriftarathöfnin hófst á því að Diljá Dagbjartsdóttir, nýstúdent flutti sumarlög ásamt Hólmgeiri Þórsteinssyni tónlistarkennara við Tónlistaskólann í Stykkishólmi á flautu og flygil. Síðan flutti nýstúdentinn Auður Kjartansdóttir tvö lög við athöfnina ásamt Hólmgeiri Þórsteinssyni sem spilaði undir á flygil. Nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, brautskráði nemendur og flutti síðan ávarp. Jakob Bragi Hannesson, kennari við skólann kvaddi síðan nemendur á heimspekilegum nótum fyrir hönd starfsfólks. Áður en þessari hlýlegu og hátíðlegu athöfn lauk flutti síðan nýstúdentinn María Björnsdóttir ræðu fyrir hönd nýstúdenta og kvaddi þar með skólann og starfsfólkið fyrir þeirra hönd. Að dagskrá lokinni sleit skólameistari skólaárinu og bauð upp á kaffiveitingar í boði Fjölbrautaskóla Snæfellinga.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur