Fréttir
Auglýsing
Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði auglýsir eftir framhaldsskólakennurum.
Umsóknarfrestur rennur út 9. júní 2009.
· Íslenska – hálf staða
· Spænska – hálf staða
· Enska – heil staða
· Viðskiptagreinar – hálf staða
Laun greiðast samkvæmt stofnsamningi skólans og félagsmanna í KÍ.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga tók til starfa í ágúst 2004. Skólinn er leiðandi í sveigjanlegum kennsluháttum og skipulagi skólastarfs á framhaldsskólastigi, m.a. með hagnýtingu upplýsingatækni í staðbundnu námi, dreifnámi og fjarnámi. Hugmyndafræði skólans gerir ráð fyrir einstaklingsmiðuðu námi í opnum rýmum með áherslu á verkefnavinnu. Leitað er að starfsfólki sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og í nýtingu nýrra miðla og upplýsingatækni í skólastarfi.
Leitað er eftir kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr.92/2008).
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2009.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Skúlínu Hlíf Kjartansdóttur, skólameistara, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði eða á netfangið skulina@fsn.is í síðasta lagi 9. júní 2009. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, skólameistari, skulina@fsn.is, s: 693-4967 og Pétur Ingi Guðmundsson, aðstoðarskólameistari, petur@fsn.is, s: 868-3618.
Skólameistari