Fréttir
Fyrsti sigurinn í Morfís keppninni.
Þetta voru 16 liða úrslit en í 32 liða úrslitum áttum við að mæta Menntaskólanum á Laugum en þeir gáfu leikinn.
Viku fyrir keppni er umræðuefnið ákveðið og í þetta sinn var það lögleiðing vændis og við vorum á móti. Liðið skipaði:
- Fanney Sumarliðadóttir liðsstjóri
- Arngrímur Stefánsson frummælandi
- Eyjólfur Fannar Scheving Jónsson meðmælandi
- Silja Rán Arnarsdóttir stuðningsmaður.
Stigin skiptust nokkuð jafnt á bæði lið en einungis munaði 81 stigi á liðunum okkur í hag. Dómarar völdu Arngrím ræðumann kvöldsins enda stóð hann sig með miklum ágætum.
Með sigri þessum er Morfís lið FSN komið í 8 liða úrslit sem er besti árangur FSN í nokkurri keppni á milli framhaldsskólanna. Næsti leikur verður haldinn í janúar en ekki er komin dagsetning á hann. Við munum keppa við sigurvegara úr einvígi Menntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Ísafirði.
Vonandi fáum við heimaleik næst en það er ekki komið í ljós hvort við keppum heima, þurfum að fara á Ísafjörð eða á Akureyri. Það skiptir gífurlegu máli að fá stuðninginn eins og liðið hefur kynnst á þessum tveimur keppnum. Þegar við fórum á Egilsstaði í fyrra var ekkert stuðningslið með liðinu og það var mjög fínt að hafa þessa 25 nemendur sem fylgdu okkur núna og hvöttu, klöppuðu og hrópuðu
Kærar þakkir fyrir stuðninginn.
Til hamingju Fjölbrautaskóli Snæfellinga.
Fanney Sumarliðadóttir liðsstjóri