Fréttir
Ný menntastefna - kynning á nýjum lögum um skóla og menntun
Fundur menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga til kynningar og umræðna um ný lög um skóla og menntun verður haldinn fyrir sunnanverða Vestfirði og Snæfellsnes á Patreksfirði, nk. þriðjudag 11. nóvember kl. 16:00-18:00.
Um er að ræða fund fyrir stjórnsýsluna; sveitarstjórnarmenn, starfsmenn skóla- og fræðslumála, skólanefndir og skólastjórnendur sem hefst kl. 16:00. Fundinum verður varpað með fjarfundabúnaði til Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði með fjarfundabúnaði.
Patreksfjörður 11. nóvember: kl. 16:00-18:00 í Framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Patreksfirði og Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði
Fundarstjóri verður Úlfar B. Thoroddsen, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar
Á fundinum verður megináherslan lögð á að fjalla um þær breytingar og nýjungar sem lögin boða og hafa munu sérstök áhrif á starfshætti sveitarfélaga og starfsmanna þeirra er sinna málefnum leik- og grunnskóla fyrst og fremst. Fjallað verður um ýmsar spurningar sem vaknað hafa í upphafi skólaársins, þ.á.m. gjaldtöku vegna skólamáltíða og ferðalaga nemenda, kostnað vegna náms grunnskólanemenda í framhaldsskólum, skipan skólaráða, samrekstrarmöguleika o.fl. Þá verður vikið að breytingum á hlutverki og skyldum skólastjórnenda og nýjum skyldum sveitarfélaga við eftirlit og mat á gæðum skólastarfs, vegna sérfræðiþjónustu o.fl . Spurt verður hvort skynsamlegt sé að setja á fót millikærustig innan sveitarfélags í ljósi kæruheimilda er tengjast ýmsum ákvæðum nýrra laga. Farið verður yfir stöðu reglugerðar- og námskrárvinnu í tengslum við lögin o.fl. Þessi álita- og umræðuefni auk þeirra annarra sem fundarmenn hafa áhuga á að bera upp verða í brennidepli á þessum fundum og gefinn verður góður tími til umræðna að loknum framsögum fulltrúa menntamálaráðuneytis og sambandsins.
Við hvetjum ykkur til þess að nýta þetta tækifæri vel til þess taka virkan þátt í fundinum og koma ykkar skoðunum á framfæri. Álit ykkar sveitarstjórnarmanna og starfsmanna og stjórnenda skóla- og fræðslumála á nýjum lögum og þeim áhrifum sem þau munu hafa á skólahald sveitarfélaga til framtíðar er afar þýðingarmikið innlegg í áframhaldandi starf og framþróun á grundvelli laganna, þ.á.m. í tengslum við þá reglugerðarvinnu sem nú er hafin.
Menntamálaráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga