Fréttir

Upphaf skólastarfs á haustönn 2008

11.8.2008

Nýnemadagur 18. ágúst, stundatöfluafhending eldri nema 19. ágúst, skólasetning 22. ágúst og kynningarfundur með nýjum eldri nemum 22. ágúst.

Nýnemadagur 18. ágúst 2008
Kynningardagur fyrir nýnema (nemendur sem útskrifuðust úr grunnskóla nú í vor) verður haldinn mánudaginn 18. ágúst kl. 10:00-15:00. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru beðnir um að koma með þær á nýnemadaginn.

Rútur fara frá Hellissandi kl. 9:20 (Hraðbúð Esso), frá Rifi kl. 9:25, frá Ólafsvík (Olís stöðin) kl. 9:35 og frá Stykkishólmi kl. 9:20 (Íþróttamiðstöð). Rúturnar fara til baka frá skólanum kl. 15:10.

Stundatöfluafhending eldri nema og dreifnámsnema 19. ágúst 2008
Stundatöfluafhending eldri nema og dreifnámsnema verður kl. 11:00-12:30.
Dreifnámsnemar sem ekki koma á stundatöfluafhendingu fá upplýsingar sendar í pósti.

Rútur fara frá Hellissandi kl. 10:20 (Hraðbúð Esso), frá Rifi kl. 10:25, frá Ólafsvík (Olís stöðin) kl. 10:35 og frá Stykkishólmi kl. 10:20 (Íþróttamiðstöð). Rúturnar fara til baka frá skólanum kl. 12:30.

__________________________

Skólasetning 22. ágúst 2008
Föstudaginn 22. ágúst kl. 8:30 verður skólasetning á sal skólans. Kennsla samkvæmt sérstakri stundatöflu hefst að henni lokinni. Minnt er á að bókalisti er birtur á vef skólans, www.fsn.is og eru nemendur hvattir til að ljúka bókakaupum áður en kennsla hefst.

Rútur fara frá Hellissandi kl. 7:40 (Hraðbúð Esso), frá Rifi kl. 7:45, frá Ólafsvík (Olís stöðin) kl. 7:55 og frá Stykkishólmi kl. 7:50 (Íþróttamiðstöð). Rúturnar fara til baka frá skólanum kl. 13.40.

Kynningarfundur með nýjum eldri nemendum föstudaginn 22. ágúst 2008
Kynningarfundur með eldri nemendum, sem munu stunda nám í FSN í fyrsta skipti í vetur, verður haldinn föstudaginn 22. ágúst kl. 13:00. Þar verða helstu þættir skólastarfsins kynntir, með sérstakri áherslu á kennsluhætti og tölvuforrit sem notuð eru í náminu.

Skólameistari



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur