Fréttir
Fjölbrautaskóli Snæfellinga útskrifar í sjötta sinn.
Nemendur sem útskrifuðust af félagsfræðabraut eru þau Anna Margrét Pálsdóttir, Bjarne Ómar Nielsen, Gissur Arnarsson, Gísli Valur Arnarson, Gísli Sveinn Gretarsson, Hrönn Björgvinsdóttir, Ísak Már Símonarson, Kristján Hildibrandsson, María Kúld Heimisdóttir og Mattías Arnar Þorgrímsson. Af málabraut útskrifaðist Berglind Ósk Kristmundsdóttir og af náttúrfræðibraut útskrifaðist Jóhannes Fannar Einarsson. Hrönn Björgvinsdóttir, nemandi á félagsfræðabraut hlaut þrenn verðlaun við útskrift sína úr skólanum. Fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi fékk hún verðlaun frá Grundarfjarðarbæ. Fyrir góðan árangur í spænsku og sálarfræði fékk hún verðlaun sem gefin voru af Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Jóhannes Fannar Einarsson fékk verðlaun fyrir góðan árangur í stærðfræði frá Kaupþingi banka og fyrir góðan árangur í þýsku fékk hann verðlaun frá Þýska sendiráðinu. Gísli Sveinn Gretarsson fékk verðlaun frá Danska sendiráðinu fyrir góðan árangur í dönsku.
Útskriftarathöfnin hófst á því að Sylvía Ösp Símonardóttir flutti Næturljóð í cís-moll eftir F. Chopin á flygil. Síðar við athöfnina söng Mattías Arnar Þorgrímsson, nýstúdent lagið Dag sem dimma Nátt, lagið er eftir Magnús Þór Sigmundsson og textinn er eftir Stefán Hilmarsson. Undirleikari var Hólmgeir S. Þorsteinsson. Johanna E. Van Schalkwyk, enskukennari kvaddi nýstúdenta fyrir hönd starfsfólks skólans og fyrir hönd útskriftarnema flutti Gísli Sveinn Gretarsson, nýstúdent kveðjuávarp til starfsfólks. Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari veitti Gísla Vali Arnarsyni verðlaun fyrir störf sín í þágu Nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga en hann hefur verið starfandi við nemendafélagið í þau fjögur ár sem hann hefur verið við nám við skólann, seinustu tvö árin var hann forseti nemendafélagsins. Að lokum fluttu nýstúdentarnir, Anna Margrét Pálsdóttir, Bjarne Ómar Nielsen og Gísli Sveinn Gretarsson ásamt Jóni Sindra Emilssyni, nemanda við skólann frumsamda lagið, Ástin og lífið sem þau tileinkuðu kennurum og öðru starfsfólki við skólann með þökk fyrir undanfarin ár.
Að dagskrá lokinni var gestum boðið upp á kaffiveitingar í boði Fjölbrautaskóla Snæfellinga.