Fréttir
Nýjar reglur um mætingu í fastar kennslustundir
- Mætingahlutfall verður skoðað einu sinni í mánuði.
- Þeir nemendur sem eru með minna en 80% í mætingahlutfall eru kallaðir í viðtal til umsjónarkennara eða námsráðgjafa til að gefa skýringar á lakri mætingu. Þeir sem ekki hafa frambærilega skýringu á reiðum höndum fá skriflega áminningu sem einnig er skráð í athugasemdir.
- Nemendur sem eru með mætingarhlutfall undir 80% tvo mánuði í röð, án frambærilegrar skýringar, fá aðra skriflega áminningu sem einnig er skráð í athugasemdir.
- Sé mætingarhlutfall undir 80% í þriðja skiptið fær nemandi brottrekstrarbréf, mál hans er tekið fyrir í skólaráði og honum boðið að nýta sér rétt sinn til andmæla með því að skrifa bréf til skólaráðs.
Nemendur eru hvattir til að sinna náminu vel, mæta í allar fastar kennslustundir og skila vel unnum verkefnum á réttum tíma, enda er það besta leiðin til árangurs.
Kennarar og stjórnendur