Fréttir
Fúsi í Fúsaskurðum
Í gær, miðvikudaginn 7. nóvember, fóru nemendur í þróunaráfanganum SNÆ með afrakstur þjóðsagnavinnu sinnar í Fúsaskurði.
Hópnum var skipt í tvennt og fjallaði annar hópurinn um útigangsmanninn Fúsa og hinn um drauginn að Þórdísarstöðum. Fúsahópurinn ákvað að útbúa Fúsa og setja hann í Fúsaskurði og fylgjast svo með því hvernig hann veðraðist í vetur. Eftir að hafa fengið leyfi frá landeiganda var hafist handa við smíði Fúsa og var endurvinnsla höfð að leiðarljósi. Fúsi er í fullri stærð, úr afgangstimbri, gömlum girðingarstaurum, fótbolta og snæri og klæðist hann gömlum fötum. Hann var festur á tréplötu svo hægt væri að fergja hann niður í náttúruna. Við hvetjum þá sem leið eiga um Kerlingarskarð að gefa sér tíma til að kíkja á Fúsa.