Fréttir
Framhaldsskóladeild FSN á Patreksfirði opnuð formlega
Þar á meðal voru menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ásamt fylgdarliði úr menntamálaráðuneytinu, Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Sturla Böðvarsson forseti Alþingis. Einnig fjölmenntu starfsmenn Fjölbrautaskóla Snæfellinga og íbúar svæðisins. Að ávörpum loknum skrifuðu menntamálaráðherra, skólameistari FSN og sveitarstjórar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps undir samstarfssamning um rekstur deildarinnar og var gestum síðan boðið að þiggja veitingar og skoða húsnæði deildarinnar.