Fréttir

Rúmlega 100 nemendur hafa staðfest skólavist

16.7.2004

Rúmlega 100 nemendur hafa staðfest skólavist sína í Fjölbrautaskóla Snæfellinga á haustönn 2004. Undirbúningur gengur vel og gengið hefur verið frá ráðningu nær allra starfsmanna.

Fyrir skömmu var haldið námskeið fyrir kennara þar sem nýir kennsluhættir voru kynntir og hinar nýstárlegu aðferðir sem notaðar verða við kennsluna þjálfaðar. Lára Stefánsdóttir stjórnaði námskeiðinu, en hún er einn fremsti sérfræðingur landsins í nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.

Vefur skólans (fsn.is) er í smíðum og er ætlunin að hann verði tilbúinn í kringum mánaðamótin júlí-ágúst. Á vefnum verður skólanámskrá skólans birt, auk alls kyns upplýsinga um skólastarfið. Þar á meðal verða upplýsingar um bækur sem nemendur þurfa að útvega sér áður en skólastarf hefst.

Mikill gangur er í skólabyggingunni þessa dagana og fjölmennt lið iðnaðarmanna vinnur þar fram á kvöld. Augljóst er að allir ætla að leggjast á eitt til þess að tímaáætlunin standist og við getum hafið kennslu 30. ágúst eins og ætlunin er.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur