Fréttir
FSN hefur verið heilsueflandi framhalsskóli frá árinu 2010
Verkefnið snýr að heildrænni stefnu í forvarna- og heilsueflingarmálum sem gerir framhaldsskólum kleift að marka sér skýra stefnu, skerpa á aðgerðaráætlunum og forvörnum og jafnframt mynda á hagnýtan hátt skýran ramma utan um þennan almenna málaflokk.
Markmiðið með verkefninu er að stuðla markvisst að velferð og góðri heilsu framhaldsskólanemenda. Enda hafa rannsóknir sýnt að heilsueflandi umhverfi bætir líðan nemenda og stuðlar að betri násmárangri. Höfuðáhersla verkefnisins er á fjögur viðfangsefni, þ.e. næringu, hreyfingu, geðrækt og lífsstíl, en eitt viðfangsefni er tekið fyrir á hverju ári. Því eru viðfangsefnin jafn mörg og námsár flestra framhaldsskólanema (en sameina má málaflokka í samræmi við styttri námsbrautir).“ Veturinn 2011-2012 er unnið með næringu. Skólinn hefur sett stefnuna á gull í þeim málaflokki, sem þýðir að ætlunin er að bjóða upp á hollan mat í skólanum, m.a. þurfa nemendur að eiga þess kost að fá hafragraut á morgnana og lýsi. Gos og sælgæti á ekki að vera á boðstólnum, en ferskir og girnilegir ávextir eiga alltaf að standa nemendum til boða. Heilsueflandi framhaldsskólar eru í samstarfi við marga aðila um að bjóða nemendum upp á tilboð í tengslum við verkefnið. T.d. geta nemendur fengið sér heilsueflandi rétt á Subway og MS er að þróa holla boost drykki sem eiga að verða í boði í skólunum eftir áramót. Auk þess er verið að vinna að samstarfssamningum á svæði FSN. Vonandi kemst það á hreint strax eftir áramót. Næsta haust verður áherslan á hreyfingu, en þær áherslur sem verða í vetur munu halda sér.