Fréttir
Upphaf skólastarfs á haustönn 2010
Nýnemadagur 18. ágúst 2010 kl. 10:00. Nýnemar (nemendur sem útskrifuðust úr 10. bekk grunnskóla nú í vor) mæta á sérstakan kynningardag – nýnemadag. Þar verður farið yfir helstu þætti skólastarfsins. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru beðnir um að koma með þær. Gert er ráð fyrir að dagskrá nýnemadags ljúki um kl. 14:00.
Nemendur í framhaldsdeildinni á Patreksfirði mæta á nýnemadag í deildina á Patreksfirði kl. 10:00
Eldri nemendur: Stundatöfluafhending/birting verður 18. ágúst kl. 11:00 – 12:30.
Skólasetning og fyrsti kennsludagur er mánudagurinn 23. ágúst kl. 8:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundatöflu.
Töflubreytingar verða 23.-25. ágúst.