Fréttir

Útskrift 21. maí 2010

22.5.2010

Föstudaginn 21. maí brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 14 nemendur, alla með stúdentspróf. Af náttúrufræðibraut útskrifuðust þau Lilja Margrét Riedel, Sveinbjörn Ingi Pálsson og Sæbjörg Lára Másdóttir. Af félagsfræðabraut útskrifuðust Anna Júlía Skúladóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Egill Guðnason, Erla Lind Þórisdóttir, Eva Lind Guðmundsdóttir, Guðmundur Haraldsson, Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir, Lárus Gohar Kazmi, Ólafur Hrafn Magnússon, Steinar Darri Emilsson og Sunna Björk Skarphéðinsdóttir.

Utskriftarhopur_2010

Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlutu tveir nemendur þau Lilja Margrét Riedel og Ólafur Hrafn Magnússon. Fengu þau veglega bókagjöf gefna af Snæfellsbæ annarsvegar og Grundarfjarðarbæ hinsvegar. Lilja Margrét hlaut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í stærðfræði, gefin af Arion Banka í Stykkishólmi, íslensku gefin af Stykkishólmsbæ, þýsku, gefin af Þýska Sendiráðinu á Íslandi og fyrir ljósmyndun, gefin af ljósmyndasamkeppni.is. Fyrir góðan árangur í sagnfræði fékk Ólafur Hrafn Magnússon verðlaun, gefin af Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Erla Lind Þórisdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum gefin af Sparisjóð Ólafsvíkur. Fyrir góðan árangur í heimspeki fékk Sveinbjörn Ingi Pálsson verðlaun og voru þau gefin af kennara hans Jakobi Braga Hannessyni sem afhenti honum persónulega verðlaunin.

Útskriftarathöfnin hófst á því að Lazlo Petó flutti létta tónlist á flygil og skapaði hann þannig sérstaka hátíðarstemmingu þegar gestir gengu í hús. Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Jón Eggert Bragason, brautskráði nemendur og flutti síðan ávarp. Að venju afhenti Pétur Ingi Guðmundsson aðstoðarskólameistari síðan verðlaun fyrir góðan námsárangur. Næst á dagskrá var frábært tónlistaratriði frá Guðmundi Haraldssyni nýstúdent sem ásamt Brynjari Kristmundssyni lék á gítar og Rúnari Geirmundssyni sem söng.

Bryndís Theodórsdóttir fulltrúi Kvenfélagasins Gleym mér ei í Grundarfirði kom og afhenti skólanum 5 fánastangir að gjöf ásamt íslenska fánanum. Valdimar Harðarson, kennari við skólann kvaddi síðan nemendur fyrir hönd starfsfólks og að því loknu flutti nýstúdentinn Sveinbjörn Ingi Pálsson ræðu fyrir hönd nýstúdenta og kvaddi þar með skólann og starfsfólkið fyrir þeirra hönd. Athöfninni lauk á jafn hátíðlegum nótum og hún byrjaði því Nýstúdentinn Lilja Margrét Riedel söng lagið „Unglingurinn í skóginum", við undirleik Lazlo Petó. Að lokum sleit skólameistari skólaárinu og bauð upp á kaffiveitingar í boði Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

verðlaunanemendur

Frá vinstri: Lilja Margrét Riedel, Ólafur Hrafn Magnússon, Erla Lind Þórisdóttir,

Sveinbjörn Ingi Pálsson og Pétur Ingi Guðmundsson aðstoðarskólameistari.

Fleiri myndir frá útskriftinni má sjá á Flickr síðu skólans.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur