Fréttir

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum.

6.5.2010

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum fyrir haustönn 2010:

Danska – 75% staða
Stærðfræði – 75% afleysingastaða
Íslenska-25% staða                                                                                                                              

Jarðfræði -   25% staða
Landafræði– 25% staða

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, almenn námsbraut og starfsbraut. Skólinn er með framhaldsskóladeild á Patreksfirði. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og margs konar námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat.

Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).

Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2010.

Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is eða Pétri Inga Guðmundssyni aðstoðarskólameistara á netfangið petur@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.

Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 26. maí 2010.

Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma 4308400/8917384 og aðstoðarskólameistari á netfangið petur@fsn.is eða í síma 4308400/8683618. Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.

 

 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur