Fréttir
Nemandi FSN í sigurliði í Forritunarkeppni Framhaldsskólanna
Lið hans sigraði í Alpha-deild keppninnar en keppt var i þremur styrkleikaflokkum, Alpha-, Beta- og Delta-deild. Í sigurliðinu ásamt Gabríel voru þeir Fannar Kristjánsson og Jónatan Óskar Nilsson en þeir tveir síðarnefndu eru nemendur við Tækniskólann.
Um níutíu framhaldsskólanemar tóku þátt í keppninni og reyndi á forritunarhæfileika þeirra og sköpunargáfu. Þeir sátu því yfir fjölbreyttum verkefnum allan laugardaginn í húsakynnum HR við Nauthólsvík. Markmið keppninnar er að efla og örva forritunaráhuga íslenskra ungmenna.
Úrslit voru kunngerð á laugardagskvöld. Tölvunarfræðideild HR stóð að keppninni í samvinnu við Nýherja og CCP. Sigurvegarar í Alpha-deild fengu niðurfelld skólagjöld hjá tölvunarfræðideild HR í eina önn en öll önnur verðlaun voru veitt af Nýherja.
Þess má til gamans geta að þetta er í annað sinn sem Gabríel er í sigurliðinu í þessari keppni og á hann því inni tvær annir í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Frá vinstri eru þeir Björn Þór Jónsson, starfandi forseti tölvunarfræðideildar HR, Emil G. Einarsson framkvæmdastjóri sölusviðs Nýherja og svo sigurliðið. (Mynd fengin af vef HR)