Fréttir
Söfnun til styrktar hjálparstarfi Unicef á Haití gekk vonum framar
Sólardagar voru haldnir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga nú í febrúar. Þar var brotið upp hefðbundið skólastarf með því að skipuleggja fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir nemendur en um leið ákváðu nokkrir nemendur að skólinn myndi líka láta gott af sér leiða.
Nemendur fóru þess vegna í gang með fatasöfnun í samstarfi við Rauða Kross deildirnar á Snæfellsnesi. Heilmikið af fötum safnaðist og ákveðið var að hafa heljarinnar Kolaportsstemningu í skólanum þessa daga þar sem nemendur seldu föt og fylgihluti af miklum móð. Það skapaðist frábær stemming fyrir þessu og nemendur, kennarar og fólk utan af götu leit við og verslaði um leið og það styrkti frábært málefni.
Salan fór fram úr okkar björtustu vonum en við seldum fyrir tæplega 50 þúsund krónur sem mun renna óskipt til hjálparstarfs Unicef á Haiti. Restin af fötunum sem á eftir að klæða marga fjölskylduna fer til Rauða krossins sem mun koma þeim rétta leið þar sem þeirra er þörf.


