Fréttir
Vel heppnuðum Sólardögum lokið
Hinir árlegu Sólardagar fóru fram í Fjölbrautaskóla Snæfellinga dagana 11 - 12 febrúar síðastliðinn. Dagarnir eru svokallaðir þemadagar þar sem á hefðbundið nám er brotið upp og nemendur taka þátt í ýmsum námskeiðum og leikjum í staðinn. Sólardögunum lauk svo með stórglæsilegri árshátíð nemenda sem fór fram á föstudagskvöld í félagsheimilinu Klifi í Snæfellsbæ.

Sólardagarnir hófust á fimmtudaginn 11. febrúar og var dagskráin fjölbreytt. Meðal þess sem var boðið upp á má nefna jóga, danskennslu, söngnámskeið, félagsvist, prjónakaffi, pönnukökubakstur og svo æfingar í stomp-i. Stomp er trommusláttur þar sem fólk notar allt það sem það finnur í umhverfinu til þess að tromma á og skapast oft mikil stemmning við þetta. Leiðbeinandi við stomp-ið var Jón Geir Jóhannsson trommuleikari í hljómsveitinni Ampop.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri. Athugið að þær opnast í nýjum glugga.
Eftir hádegi fór svo stór hópur nemenda og kennara í hellaskoðun. Farið var í Purkhólahraun sunnan við Snæfellsjökul og komið við í þremur hellum, Stromphelli, Hólsborg og svo á bakaleiðinni var komið við í Langagangi.
Samhliða öllu þessu var svo í gangi fatamarkaður til styrktar barnastarfi Unicef í samvinnu við Rauða krossinn á Snæfellsnesi. Söfnunin gekk vonum framar en áætlað er að um 50.000 kr. hafi safnast. Afgangurinn af þeim fötum sem ekki seldust verða afhent Rauða Krossinum sem mun sjá til að koma þeim til nauðstaddra á Haíti. Svo sannarlega frábært framtak hjá nemendum skólans og eiga þau mikið hrós skilið.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri. Athugið að þær opnast í nýjum glugga.
Á föstudeginum var svo meðal annars boðið upp á hárgreiðslunámskeið, kvikmyndasýningu, pókermót og svo var spurningakeppni milli nemenda og kennara. Skemmst er frá því að segja að nemendur fóru með sigur af hólmi en naumlega þó. Hópurinn sem hafði verið við æfingar í Stompi sýndi afraksturinn og heppnaðist sú sýning stórvel.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri. Athugið að þær opnast í nýjum glugga.
Í hádeginu var svo Gólið, en það var undankeppni fyrir söngkeppni framhaldsskólana. Þrír þáttakenndur tóku þátt og fór svo að hljómsveitin Duck Tape sem er skipuð ungum vestfirðingum sigruðu með frumsamið lag sem heitir Breyttir tímar. Lagið er eftir Magna Smárason og textinn eftir Unu Hlín Sveinsdóttur. Þau munu því taka þátt fyrir hönd skólans í lokakeppninni.
Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri. Athugið að þær opnast í nýjum glugga.
Hápunktur Sólardaganna var svo árshátíð skólans sem fór fram í félagsheimilinu Klifi í Snæfellsbæ. Veislustjóri var hinn þjóðþekkti skemmtikraftur Þorsteinn Guðmundsson og lauk kvöldinu svo með dansleik þar sem gleðisveitin Buff lék fyrir dansi.
Það má því segja að dagarnir hafi verið viðburðaríkir og eiga allir þeir sem að þeim komu mikið hrós skilið. í Skólanum tekur nú við hefðbundið skólastarf og lærdómur enda veitir ekki af þar sem lotuskiptin nálgast óðfluga.
Fleiri myndir má sjá á Flickr síðu skólans: http://www.flickr.com/photos/fjolbrautskoli_snaefellinga/









