Fréttir
Regla um læknisvottorð aftur í gildi
Þar sem dregið hefur úr álagi á heilsugæslustöðvar af völdum inflúensu hefur verið send út tilkynning þess efnis að hægt er að sinna gerð veikindavottorða framhaldsskólanema. Því tekur upprunaleg regla gildi um að nemendur skulu skila læknisvottorði ef veikindi vara lengur en þrjá daga:
Skólasókn og veikindi
Nemendum ber að sækja allar kennslustundir samkvæmt stundaskrá. Séu nemendur fjarverandi úr skóla gilda vissar reglur um hvernig taka skal á slíkum fjarvistum eftir því hver ástæða fjarvistanna er. Geti nemandi ekki sótt skóla vegna veikinda eða af öðrum ástæðum skal hann tilkynna forföllin daglega á skrifstofu skólans. Læknisvottorði skal skila inn ef veikindi vara 3 daga eða lengur.