Fréttir

Útskrift í FSN - 18. desember 2009

24.12.2009

Föstudaginn 18. desember brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 12 nemendur,  alla með stúdentspróf.

Af  náttúrufræðibraut útskrifuðust  þau Hafdís Guðrún Benediktsdóttir og Njáll Gunnarsson.  Af félagsfræðabraut útskrifuðust  þau Ágúst Ingi Guðmundsson, Ása Gunnarsdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Magnús Már Leifsson, Maria Joao de Jesus Neves, Ólöf  Rut Halldórsdóttir, Steinunn Alva Lárusdóttur og Unnur Lára Ásgeirsdóttir. Tveir nemendur útskrifuðust með viðbótarnám til stúdentprófs þau Edda Baldursdóttir og Tómas Freyr Kristjánsson.

 

Hæstu einkunn á stúdentsprófi hlaut Maria Joao de Jesus Neves og  fékk  hún  veglega bókagjöf  gefna af Snæfellsbæ. Maria Joao hlut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í félagsfræði og sálfræði,  gefin af Snæfellsbæ og Stykkishólmsbæ. Fyrir góðan árangur í sagnfræði fékk Ólöf Rut Halldórsdóttir verðlaun, gefin af Snæfellsbæ. Edda Baldursdóttir hlaut  verðlaun fyrir góðan árangur í Sálfræði gefin af Gámaþjónustu Vesturlands.  Fyrir góðan árangur í líffræði fékk Njáll Gunnarsson verðlaun og voru þau gefin af Náttúrustofu Stykkishólms.

Einnig fékk Magnús Már Leifsson viðurkenningu fyrir störf sín í þágu nemendafélagsins  gefin af Fjölbrautaskóla Snæfellinga.   

 

Útskriftarathöfnin hófst á því að  Ólöf Rut Halldórsdóttir, útskriftarnemi, og Sylvía Ösp Símonardóttir, nemandi í FSN, fluttu nokkur jólalög á flygil og þverflautu. Skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Skúlína Hlíf Kjartansdóttir, brautskráði nemendur og flutti síðan ávarp. Næst afhenti Pétur Ingi Guðmundsson, aðstoðarskólameistari  verðlaun fyrir góðan námsárangur. Nýstúdentinn Ólöf Rut Halldórsdóttir flutti síðan jazz-lagið „Round Midnight“, við undirleik Sylvíu Aspar Símonardóttur  Hreinn Þorkelsson, kennari við skólann  kvaddi síðan nemendur  fyrir hönd starfsfólks.   Áður en þessari hátíðlegu  athöfn lauk flutti síðan  nýstúdentinn Magnús Már Leifsson ræðu  fyrir hönd nýstúdenta og kvaddi þar með skólann og starfsfólkið fyrir þeirra hönd. Að dagskrá lokinni  sleit skólameistari skólaárinu og bauð upp á kaffiveitingar í boði Fjölbrautaskóla Snæfellinga.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur