Fréttir

Nám á ferð og flugi

30.11.2009

Menntaskóli Borgarfjarðar, Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Síminn hafa gert með sér samkomulag um um samvinnu og samstarf við að þróa notkun farsíma í námi og kennslu. Heiti verkefnisins er “Nám á ferð og flugi”. Skrifað var undir samkomulagið föstudaginn 27. nóvember við hátíðlega athöfn í Menntaskóla Borgarfjarðar.

Undir samninginn skrifuðu Elín Þórunn Eiríksdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans fyrir hönd símans, Ársæll Guðmundsson skólameistari fyrir hönd MB og Skúlína Hlíf Kjartansdóttir skólameistari fyrir hönd FSN.

Skúlína, Elín Þórunn og Ársæll skrifa undir samning í Borgarnesi

Megintilgangur samstarfsverkefnisins er að kanna með hvaða hætti hagkvæmt sé að nýta sér nútíma farsímatæki í námi og kennslu. Leitast verði við að kanna leiðir og þróa aðferðir, bæði kennslufræðilega og viðskiptafræðilega. Gert er ráð fyrir að verkefnið taki þrjú ár.  Skólarnir munu nýta sér farsímatækni við kennslu t.d. við útikennslu og söfnun gagna í raunvísindagreinum, s.s. náttúrufræði, landafræði, jarðfræði, en einnig á nýjum námsbrautum, s.s. í ferðamálafræðum.

Kannaðir verða möguleikar á notkun farsíma í ýmsum greinum, s.s. tungumálum, bókmenntum, sagnfræði, samfélagsfræði og íþróttum. Stefnt verður að nýtingu farsíma í námi nemenda með fötlun og skerta námsgetu. Þetta verður gert þannig að safnað verður gögnum með hjálp farsímatækni á vettvangi og þeim síðan komið fyrir í tölvum og miðlað á netinu. Teknar verða ljósmyndir, myndbönd og tekið upp hljóð með farsímunum. Hugmyndin er sú að nægt sé að nálgast þetta efni á netinu og í farsímum. Td. geti ferðamenn eða aðrir sem vilja fræðast um svæðið fengið upplýsingar um staði og náttúru þar sem þeir eru staddir á í gegnum farsímann sinn. Einnig er hugmyndin að nýta eða þróa ýmis forrit fyrir farsíma og nota GPS tæknina til að staðsetja upplýsingar. Setja má upp orðabækur, glósubækur og námsefni fyrir farsímana. Möguleikar eru því nær óþrjótandi og munu auka fjölbreytni í námi og kennslu. Verkefnið verður unnið í nokkrum áföngum og lýkur árið 2012

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur