Fréttir
Útskriftanemar og fulltrúar nemendafélagsins fóru í heimsókn.
Útskriftarnemar og fulltúrar stjórnar nemendafélagsins fóru í skemmtilega dagsferð miðvikudaginn 18. nóvember og kynntu sér Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Dagurinn hófst með því að lagt var af stað frá FSN frá kl níu. Leiðinn lá til Reykjarvíkur, byrjuðum við á því að fara að skoða Háskóla Íslands. Eldri nemendur úr FSN þau Sigurlín og Baldvin tóku á móti okkur og fylgdu okkur um Háskólasvæðið. Einnig hittum við aðra eldri nemendur sem fræddu okkur um námið sitt og fengum við góða fræðslu á námsgreinum eins og guðfræði, stærðfræði, lögfræði og sálfræði.
Næst lá leiðinn okkar upp í Ofanleiti við Háskólann í Reykjavík, þar tók Kristín markaðsfulltrúi skólans á móti okkur. Fengum við höfðinglegar móttökur upp í H.R. Við fengum m.a. almenna kynningu á námi og þeirri þjónustu sem er í boði við Háskólann í Reykjavík. Einnig komu eldri nemendur úr Fjölbrautarskóla Snæfellinga sem stunda nám við háskólann og lýstu fyrir okkur náminu sem þau stunda við Háskólann í Reykjavík.
Dagurinn endaði svo á Leiðtoga- og nýsköpunarvinnustofu sem var ætluð stjórnum nemendafélaga framhaldsskólanna, en okkur útskriftarnemendum var einnig boðið að koma og taka þátt. Leiðtoga- og nýsköpunarvinnustofan var haldin í tilefni af alþjóðlegri athafnaviku Háskólans í Reykjavík. Stjórnendur vinnustofunnar voru þau Svafa Grönfeldt rektor HR, Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit og Sunna Magnúsdóttir formaður Stúdentafélags HR.
Til að gera langa sögu stutta þá unnu tveir nemendur okkar, þeir Davíð Magnússon og Jón Viðar Pálsson, verðlaun fyrir verkefni sem þeir skiluðu ásamt nemendum við Verzlunarskóla Íslands og gekk út á það að markaðssetja vöru sem Innovit hannaði og ætlar í raun að setja á markað. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Þessi ferð var mjög eftirminnileg og við viljum þakka fyrir okkur og þakka skólanum fyrir stuðninginn því þessi ferð hefði ekki annars orðið að veruleika, og einnig viljum við þakka Helgu Lind fyrir að láta þetta allt verða að veruleika.
Takk fyrir okkur: