Fréttir
Stjörnufræði, Kerfislífræði og MORFÍS
APPOLLO 11 afmælishátíð NASA í Bandaríkjunum setti svip sinn á skóladaginn. Þekkingarmaraþon og tunglganga voru upptaktur...
Hefðbundin kennsla var í skólanum fram að hádegi, en klukkan 13.00 hófst tákræn tunglganga þar sem gengin var vegalengdin til tunglsins, þar sem 1 skref var tekið fyrir hverja mílu. Nemendur og kennarar létu ekki rigningu og vind aftra sér í göngunni og gekk stór hópur um tveggja kílómetra leið í bænum og samtímis gengu nemendur og kennarar á Patreksfirði sömu vegalengd.
Um 2-leytið hófst svo þekkingarmaraþon í skólanum en þar gafst nemendum kostur að kynna sér ýmiss viðfangsefni í tengslum við geimvísindi frá ýmsum hliðum, s.s bókmenntum, vísindum, tónlist og kvikmyndum.
Síðdegis var boðið upp á dagskrá með fyrirlestri frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness þar sem formaður félagsins, Sævar Helgi Bragason, fræddi nemendur um himinngeiminn. Einnig áttu nemendur netspjall við Bernharð Pálsson, Galatti prófessor í lífefnaverkfræði og læknisfræði við Kaliforníuháskóla í San Diego í Bandaríkjunum, um geimvísindarannsóknir og afleiddar rannsóknir í kerfislíffræði, sem eru í gangi hér á landi.
Þá tók við APOLLO 11 afmælishátíð NASA þar sem Jerry Woodfill sem tók þátt í undirbúningi á tunglgöngu Apollo 11 ferðarinnar fjallaði um hana og ýmislegt í tengslum við þjálfun geimfara og stjórnstöð NASA. Nemendur FSN fengu tækifæri til að spyrja hann spjörunum úr ásamt nemendum hinna skólanna fjögurra í Bandaríkjunum sem tóku þátt í útsendingunni. Haldin var listaverkasamkeppni í tengslum við NASA afmælishátíðina og fengu áhorfendur beggja vegna Atlantshafsála að líta þau verk sem nemendur FSN sendu inn, en að launum fá þau pakka frá NASA.
Um kvöldið var MORFÍS keppni á milli FSN og MH á dagskrá. Keppnislið FSN var skipað þeim Jóni Þóri Einarssyni, Arngrími Stefánssyni, Rut Einarsdóttur og Hirti Stein Fjeldsted. Umræðuefnið var málshátturinn "Hver er sinnar gæfu smiður" og var FSN liðið meðmælendur en MH mótmælendur. Fámennt stuðningslið MH mættu á staðinn en nemendur FSN létu sig ekki vanta og fjölmenntu og skapaðist feyknagóð stemming í salnum. Eftir langa og spennandi rimmu bar MH sigur út býtum.