Fréttir

FSN tekur þátt í fjarfundi með NASA

í tilefni 40 ára afmælis tunglferðar Appollo 11

11.11.2009

Fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur verið valinn til þátttöku í APPOLLO 11 afmælishátíð NASA í Bandaríkjunum, sem um þessar mundir heldur upp á að 40 ár eru liðin síðan maður setti fyrst fót á tunglið.

65608main_bootprint_100

FSN er einn af fimm alþjóðlegum framhaldsskólum sem taka þátt í undirbúningi hátíðarinnar, með fræðslu um geimvísindi, samkeppni um myndverk og göngukeppni. Fróðleikur um geimferðir og stjarnvísindi eru ofarlega á dagskrá í aðdraganda afmælisins og kynningarefni verður til reiðu í náms- og kennslukerfi skólans. Verkefnið er unnið í samstarfi við Nýherja.

spaceimages_2066_5877324

Haldið verður upp á afmælið með þekkingarmaraþoni eftir hádegi - fimmtudaginn 19. nóvember. Þá munu nemendur í FSN leggja vanabundið nám til hliðar en starfa saman í áhugahópum um einstök málefni sem tengjast geimþemanu. Um miðbik dagsins verður farið í táknræna tunglgöngu, þar sem gengin verður vegalengdin til tunglsins, þar sem 1 skref er tekið fyrir hverja mílu.  Eftir hádegi opnar skólinn dyr sínar fyrir gestum og gangandi sem vilja fræðast um geiminn og geimferðir.  Síðdegis fær skólinn gesti í heimsókn sem kynna stjörnufræði og stjörnuskoðun – og vísindarannsóknir sem tengjast geimferðum og geimvísindum.  Dagskrá dagsins má kynna sér nánar hér.

FSN mun taka þátt í gagnvirkri útsendingu með vísindamönnum NASA fimmtudaginn 19.nóvember – kl. 18.00.  Þá mun skólinn tengjast Johnson Space Center í Houston, Texas – til að fræðast um tunglferðir, þjálfun geimfara og geimskot.  Nemendur munu jafnframt fá tækifæri til að leggja spurningar fyrir vísindamenn stöðvarinnar og kynnast aðstæðum þar.

Deginum lýkur með MORFÍS mælsku- og rökræðukeppni,  það eru MH-ingar sem sækja FSN heim.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur