Fréttir
Hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna
Keppnin gengur út á það að hverjum hópi þátttakenda (1-3) er fenginn ákveðinn einfaldur hlutur sem hópurinn reynir að gera sem mest virði úr. Snilldarhluturinn árið 2009 er: Herðatré!
Þetta er einfalt - hóparnir eiga að nota ímyndunaraflið og búa til sem mest virði úr þessum hlut. Þá næst eiga þeir að gera 3 mínútna langt video um hugmyndina og besta hugmyndin vinnur. Skila þarf myndbandinu fyrir kl. 12:00 sunnudaginn 15. nóvember. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu þrjú sætin.
Við hvetjum áhugasama um að ganga í Facebook-grúppuna; http://www.facebook.com/home.php?#/pages/Snilldarlausnir/160195971269?ref=mf
eða einfaldlega kíkja inn á www.snilldarlausnir.is
Leynist snillingur í þér?