Fréttir
Kaffihúsakvöld í FSN
Fjölbreytt dagskrá var í boði og stigu meðal annars á stokk tvær hljómsveitir skipaðar nemendum skólans auk þess sem nýstofnaður kór skólans þreytti frumraun sína undir stjórn Unnar Sigmarsdóttur kennara við skólann.
Ljósmyndaklúbburinn Moviola sýndi myndband frá busavígslu skólans sem var haldin fyrr í haust og svo var stuttmyndin Forboðin ást frumsýnd en hún er skólaverkefni nokkurra nemenda sem eru að læra stuttmyndagerð í skólanum. Af þessu öllu má sjá að mikið er af hæfileikaríku fólki í skólanum sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.
Myndir frá skemmtuninni má sjá á myndasíðu skólans.