Fréttir
Fjarnámsnemar frá Vestfjörðum í heimsókn
Skólaheimsókn er að jafnaði einu sinni í mánuði og stendur yfir í 3-4 daga. Þá mæta nemendur í kennslustundir hjá kennurum, hitta aðra nemendur og taka þátt í því félagslífi sem er í boði hverju sinni. Að þessu sinni stendur nemendafélagið fyrir kaffihúsakvöldi og munu Vestfirðingarnir fjölmenna þangað ásamt öðrum nemendum skólans og nemendum úr 9. og 10. bekk grunnskólanna á Snæfellsnesi.

Á myndinni má sjá nokkra af nemendum framhaldsdeildar.