Fréttir

21.5.2012 : Aðstoðarskólameistari ráðinn

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir hefur verið ráðin í 50% stöðu aðstoðarskólameistara FSN frá og með 1.ágúst 2012.
 

15.5.2012 : Útskriftarhátíð FSN

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin föstudaginn 25. maí í hátíðarsal skólans í Grundarfirði. Hátíðin hefst kl.15:00 og að henni lokinni verða kaffiveitingar í boði skólans.

Allir velunnarar skólans eru velkomnir.

 

2.5.2012 : Stórsveit Snæfellsness

2P7J5397_as_Smart_Object-1

Vaskir nemendur í Stórsveit Snæfellsness halda þrenna tónleika í byrjun maí. Stórsveitin er skipuð nemendum í Fjölbrautaskóla Snæfellinga og er fyrsta starfsári hennar að ljúka.

Lesa meira
 

26.4.2012 : Úrslit í smásagnakeppninni

smasagnakeppni

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í gær miðvikudaginn 25. apríl voru tilkynnt úrslit í smásagnakeppni áfangans „Skapandi skrif“. Tólf sögur bárust og voru veitt vegleg bókaverðlaun fyrir þrjár bestu sögurnar. Dómarar voru íslenskukennararnir Erna Guðmundsdóttir og Jakob Bragi Hannesson. Í fyrsta sæti varð ,,Ljót ástarsaga“ eftir Mörtu Magnúsdóttur, í öðru sæti „Hlutverkaskipti í flauelskjól“ eftir Jónínu Riedel og í þriðja sæti „Önnur veröld“ eftir Steinunni Brynju Óðinsdóttur. Vinningssögurnar munu birtast á heimasíðu áfangans á eftirfarandi slóð:

http://arkub.weebly.com/

 

 

12.4.2012 : Aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga - Grundarfirði

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir aðstoðarskólameistara í 50% stöðu frá 1.ágúst 2012. Lesa meira
 

11.4.2012 : Til hamingju strákar!

Songvakeppni

Strákarnir á Starfsbraut skólans tóku þátt í söngvakeppni starfsbrauta sem haldin var fimmtudaginn 29.mars sl. í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

Lesa meira
 

30.3.2012 : Verkefnisstjóri umhverfis- og auðlindabrautar

Auglýst er eftir verkefnisstjóra sem hefur umsjón með fjarnámi til stúdentsprófs með áherslu á umhverfis- og auðlindafræði. Lesa meira
 

20.3.2012 : Smásagnakeppni FSN

penni

Hvernig fer keppnin fram ?

Lesa meira
 

1.3.2012 : Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2012

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 12. til 30. mars

Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) hefst mánudaginn 12. mars og lýkur föstudaginn 30. mars. Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli að innritunarvef og leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá ráðuneytinu með upplýsingum um innritunina. Ráðuneytið hvetur nemendur í 10. bekk eindregið til að taka þátt í forinnrituninni.

Lesa meira
 

16.1.2012 : Góðir hálsar

jan12-2_017Miðvikudaginn 11. janúar fóru nemendur FSN á leiksýninguna Góðir hálsar í Frystiklefann í Rifi sem er skemmtileg uppfærsla af sögunni um fjöldamorðingjann Axlar-Björn. Lesa meira
 

16.12.2011 : Gettu betur - spurningakeppni framhaldsskólanna 2012

Lið Fjölbrautaskóla Snæfellinga mun mæta liði Fjölbrautaskóla Suðurlands mánudaginn 9. janúar í fyrri umferð í spurningakeppni framhaldsskólanna á rás 2.
 

15.12.2011 : FSN hefur verið heilsueflandi framhalsskóli frá árinu 2010

heilsaVerkefnið snýr að heildrænni stefnu í forvarna- og heilsueflingarmálum sem gerir framhaldsskólum kleift að marka sér skýra stefnu, skerpa á aðgerðaráætlunum og forvörnum og jafnframt mynda á hagnýtan hátt skýran ramma utan um þennan almenna málaflokk. Lesa meira
 

13.12.2011 : Forsetaskipti í FSN

2P7J8549_as_Smart_Object-1_(2)

Forsetaskipti urðu í nemendafélagi Fjölbrautarskóla Snæfellinga klukkan tólf á hádegi föstudaginn 9. desember síðastliðinn. Þá tók Jón Viðar Pálsson við sem forseti NFSN af Ívari Sindra Karvelssyni sem hafði gegnt því embætti.

Lesa meira
 

23.11.2011 : Vel heppnaðir tónleikar Stórsveitar Fjölbrautaskóla Snæfellinga

2P7J8178_as_Smart_Object-1 Stórsveit Fjölbrautaskóla Snæfellinga hélt sína fyrstu tónleika þriðjudagskvöldið 22. nóvember í húsnæði FSN í Grundarfirði. Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og viðtökur góðar. Lesa meira
 

21.11.2011 : Morfís

Á fimmtudaginn fór fjögurra manna Morfís lið FSN til Reykjavíkur ásamt hópi stuðningsmanna. Kvöldinu var varið í Kvennaskólanum þar sem viðureign FSN og Kvennó í 16 liða úrslitum Morfís, mælsku- og rökræðukeppni framhaldskólanna fór fram. Lesa meira
 

11.11.2011 : Innritun á vorönn 2012 stendur yfir

Fjölbrautaskóli Snæfellinga býður upp á fjölda áfanga í fjar- eða dreifnámi á vorönn 2012 Lesa meira
 

9.11.2011 : Þjóðháttasöfnun um framhaldsskólasiði

Um þessar mundir er unnið að undirbúningi þjóðháttasöfnunar um hefðir og siði í framhaldsskólum á vegum Þjóðminjasafns Íslands. Það verður send út könnun á nemendur FSN eldri en 18 ára. Lesa meira
 

4.11.2011 : Framhaldsdeild FSN í Kastljósi

Nemendur í framhaldsdeild FSN á Patreksfirði eru tæplega 30 haustið 2011.

Af þeim nemendum sem útskrifuðust úr 10. bekk á sunnanverðum Vestfjörðum s.l. vor, skráðu allir nema einn sig til náms við framhaldsdeild FSN í haust.

Jóhannes Kristjánsson fréttamaður heimsótti framhaldsdeildina á dögunum og má sjá umfjöllun hans sem birtist í Kastljósi þann 26. október hér.

http://ruv.is/sarpurinn/kastljos/26102011

 

Lesa meira
 

27.9.2011 : Breyting á rútuferðum

Rúturnar fara 5 mínútum fyrr heim í dag, stefnan er að flýta þeim þannig að þær fara heim kl. 15:45 í staðinn fyrir 15:50
 

9.9.2011 : Heimsmeistari í FSN

Grundfirski kraflyftingamaðurinn Rúnar Geirmundsson

Runar_Geirmundsson

Lesa meira
 

2.9.2011 : Busadagur að baki

busun

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Þann 31. ágúst var busadagur haldinn hátíðlegur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga en 56 nýnemar hófu nám við skólann í haust. Dagskrá busadagsins var í höndum nemendafélags skólans - NFSN og sáu útskriftarnemendur skólans um að vígja nýnemana inn í skólann með pompi og prakt.

Lesa meira
 

2.9.2011 : Skólasetning í FSN

Skólasetning í Fjölbrautaskóla Snæfellinga var mánudaginn 22. ágúst. Á haustönn 2011 eru 240 nemendur skráðir til náms og af þeim eru 56 að hefja sitt fyrsta skólaár í framhaldsskóla og þeir eru boðnir sérstaklega velkomnir. Óvenju margir eru að snúa aftur til náms eftir eitthvert hlé frá námi, hluti þeirra er í fullu námi en aðrir í skertu og þá oftast sem dreifnemendur. Dreifnemendur eru 36 þetta haustið og er það örlítil fjölgun frá því í fyrra. Alls stunda 27 nemendur nám í framhalsdeildinni á Patreksfirði. Heildarfjöldi nemenda er 240. Lesa meira
 

18.8.2011 : Bárður

Bárður er upplýsingarit fyrir nemendur um skólastarfið, hér má nálgast hann.
 

15.8.2011 : Umsókn um skólaakstur haustönn 2011.

Vinsamlega skilið umsókninni á skrifstofu skólans fyrir 31. ágúst og greiðið 12.000 kr. staðfestingargjald inn á reikning skólans. Lesa meira
 

9.8.2011 : Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftirfarandi stöður.

Stuðningsfulltrúi við starfsbraut FSN í Grundarfirði, 100% staða í 5 mánuði.

Starfsmaður í ræstingar í Grundarfirði, 40% staða í rúma 8 mánuði.

Lesa meira
 

3.8.2011 : Skólaakstur í Framhaldsdeild FSN á Patreksfirði

Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir tilboði í skólaakstur fyrir Framhaldsdeild skólans á Patreksfirði veturinn 2011-2012. Ekið er með nemendur að morgni, alla virka daga frá Tálknafirði og Bíldudal til Patreksfjarðar og til baka síðdegis. Einnig eru farnar þrjár til fjórar ferðir til Grundarfjarðar á önn og þá þarf akstur fyrir alla nemendur framhaldsdeildarinnar (25-30). Lesa meira
 

20.6.2011 : Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Jón Eggert Bragason í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga til fimm ára.
Lesa meira
 

24.5.2011 : Föstudaginn 20. maí brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 14 nemendur

utskrift vor 2011Föstudaginn 20. maí brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 14 nemendur, alla með stúdentspróf. 5 nemendur af 14 kláruðu námið á aðeins þremur árum. Lesa meira
 

19.5.2011 : Útskriftahópurinn til Ibiza !!

Gleðilegt sumar! Lesa meira
 

16.5.2011 : Hástökkvarinn

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er réttnefndur hástökkvari ársins 2011, en skólinn bætti sig langmest á milli ára. Hann var í neðsta sæti á lista minni stofnana sem komust á blað í fyrra en er nú í 19 sæti af 85 stofnunum. Hann fór úr raðeinkunn 2 á árinu 2010 í raðeinkunnina 89 á árinu 2011, eða upp um heil 87 sæti. Lesa meira
 

2.5.2011 : Embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga rann út mánudaginn 25. apríl sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust fjórar umsóknir um stöðuna, frá einni konu og þremur körlum. Lesa meira
 

29.4.2011 : Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum fyrir skólaárið 2011-2012.

Danska 50 – 75% staða

Enska 50 – 75% staða

Félagsfræði 50% staða

Sálfræði 50% staða

Stærðfræði 50% staða

Lesa meira
 

29.4.2011 : Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftirfarandi stöður.

Deildarstjóri framhaldsdeildar FSN á Patreksfirði, 75% staða.

Starfsmaður framhaldsdeildar FSN á Patreksfirði, 75% staða.

Stuðningsfulltrúi við starfsbraut FSN í Grundarfirði 100% staða í 6,5 mánuði

Lesa meira
 

23.3.2011 : Heimurinn okkar

Opinn_dagur_023

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Félag atvinnulífsins í Grundarfirði (FAG) stóð að sýningunni Heimurinn okkar í húsakynnum Fjölbrautaskólans laugardaginn 19. mars.

Lesa meira
 

15.3.2011 : Comeniusarverkefnið TeenTV

IMG_5928

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér í  skólanum eru gestir frá nokkrum Evrópulöndum í tengslum við Comeniusarverkefni sem skólinn er aðili að og eru kennararnir Sólrún og Hrafnhildur tengiliðir hér.

Lesa meira
 

2.3.2011 : Fyrsta námsár í bygginga- og málmiðngreinum. Fjölbrautaskóli Snæfellinga í samvinnu við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefur ákveðið að bjóða eins árs nám í bygginga- og málmiðngreinum næsta skólaár.

Innritun eldri umsækjenda, þ.e. annarra en þeirra sem koma beint úr grunnskóla, hefst 26. apríl og lýkur 31. maí. Námsframboðið byggir á því að nægjanlegur fjöldi innritist á brautina. Lesa meira
 

23.2.2011 : Innritun í framhaldsskóla haust 2011

Tilhögun innritunar í framhaldsskóla haustið 2011 Lesa meira
 

22.2.2011 : Sólardagar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Temadagar_24._-_25._februar_2011_019

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á  fimmtudag og föstudag 17. og 18. febrúar í síðustu viku, fengu nemendur og starfsfólk Fjölbrautaskóla Snæfellinga tækifæri til að líta upp úr námsbókunum og blanda geði á árlegum Sólardögum FSN. Allskonar námskeið og uppákomur voru í boði.

Lesa meira
 

20.1.2011 : Vantar þig hljóðbækur ?

Nemendur með greiningu um námserfiðleika eiga rétt á aðgangi að hljóðbókum í námi sínu. Hér má sjá upplýsingar um hvernig ferlið gengur fyrir sig.i Lesa meira
 

12.1.2011 : Morfís

Föstudaginn 14. janúar verður haldin Morfís keppni í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Rútur fara frá Hellissandi kl. 19:00, Rifi kl. 19:03, Ólafsvík kl. 19:15 og Stykkishólmi kl. 19:00.

Heimferð áætluð frá FSN um kl. 22:00.

Lesa meira
 

3.1.2011 : Útskrift 17. desember 2010

Föstudaginn 17. desember brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 12 nemendur, alla með stúdentspróf.

Utskrift_10a

Lesa meira
 

16.12.2010 : Bókalisti og áfangar sem kenndir verða á vorönn 2011

Bókalisti fyrir vorönn 2011 er tilbúnn og má nálgast hann hér, einnig eru áfangar sem kenndir verða á vorönn 2011 tilbúinir - þá má nálgast hér
 

14.12.2010 : Upphaf vorannar 2011

Stundatöfluafhending/birting verður 5. janúar kl. 11:00-12:30. Skólasetning og fyrsti kennsludagur á vorönn 2011 er föstudagurinn 7. janúar kl. 08:30. Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt stundatöflu.
 

25.11.2010 : Mótmæla niðurskurði framhaldsskóla

Skólinn 17. mars 2005Kennarafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er þeim hugmyndum sem settar eru fram í fjárlagafrumvarpinu um niðurskurð fjárveitinga til framhaldsskóla. Lesa meira
 

12.11.2010 : Laus staða við Framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Patreksfirði

Starfsmaður í framhaldsdeild – 100 % staða

Starfið felst m.a. í umsjón með daglegri starfsemi deildarinnar og aðstoð við nemendur, en þeir stunda dreifnám frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Viðkomandi fylgir nemendum í námsferðir til Grundarfjarðar, en þangað er farið að jafnaði einu sinni í mánuði yfir skólamánuðina.

Lesa meira
 

28.10.2010 : Vetrafrí 29. október og 1. nóvember

Vetrafrí verður í skólanum 29. október og 1. nóvember, skrifstofan verður einnig lokuð, kennsla hefst aftur samkvæmt stundatöflu 2. nóvember.

 

26.10.2010 : Ungt fólk 2010

Fyrstu vikuna í nóvember er fyrirhugað að gera könnun á högum og líðan ungmenna í öllum framhaldsskólum á Íslandi. Könnun þessi er samkvæmt rannsóknaráætlun R&G meðal ungmenna í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið en auk þess kemur Lýðheilsustöð að verkefninu.

Hér er bréf til foreldra ólögráða ungmenna 16 og 17 ára.

 

19.10.2010 : Framhaldsskólamót í knattspyrnu

Síðastliðin sunnudag fóru 7 stelpur frá Snæfellsnesi að keppa fyrir hönd FSN í framhaldsskólamótinu í fótbolta á Ásvöllum og stóðu sig með prýði. Stelpurnar enduðu í 3.sæti og þess má til gamans geta að liðið tapaði 1-0 á mót MS sem fór alla leið í úrslit.

 

11.10.2010 : Bleikur dagur föstudaginn 8. október 2010

bleikur_dagur_001Nokkrir starfsmenn FSN mættu í bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum með "bleikum föstudegi". Lesa meira
 

7.10.2010 : Nokkrir nemendur FSN hafa verið valin í landslið U-17 OG U-19 í blaki og U-19 í fótbolta

Það eru þau Katrín Sara Reyes (úr Víkingi), Sigurður Helgi Ágústsson, Friðfinnur Kristjánsson og Ingi Björn Ingason (úr UMFG) í blakinu og svo þeir félagar Brynjar Gauti Guðjónsson og Brynjar Kristmundsson (úr Víkingi) í fótbolta.

Lesa meira

 

23.9.2010 : Iceland PetroChallenge 2010

tessi_a_netid

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

FSN tekur nú í fyrsta sinn þátt í PetroChallenge- keppninni og er með eitt lið. Þessi keppni, sem er styrkt af Orkustofnun, snýst um að nota hermiforrit til að leita að olíu og gasi á svæðinu kringum Ísland. Að þessu sinni taka þrír framhaldsskólar þátt í þessu, FSN, FAS og FÍV. Í liði FSN eru þær Harpa Dögg Ketilbjarnardóttir, Saga Björk Jónsdóttir, Silja Rán Arnarsdóttir og Sonja Sigurðardóttir.

 

16.9.2010 : Heimsókn frá Danmörku

Danskir_vinir     Þessi fríði hópur kom í heimsókn til okkar í dag. Hér voru á ferð tíu danir sem eru í félagsskap sem nefnir sig FLUID (Forening For Flexibel Uddannelse I Danmark). Þau eru að kynna sér nýjungar í skólastarfi á Íslandi auk þess að skoða náttúru Íslands. Þau fengu kynningu á skólanum og gengu svo um bygginguna og spjölluðu við nemendur og kennara. Þau voru mjög hrifin af óhefðbundnu kennsluumhverfi okkar og hve góður vinnuandi ríkti og vildu óska okkur alls hins besta í framtíðinni.

 

14.9.2010 : Jöfnunarstyrkur

Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk skólaárið 2010 - 2011 rennur út 15. október. Allar upplýsingar eru inni á www.lin.is eða á Mitt LÍN í heimabankanum þínum eða INNU.

 

6.9.2010 : Foreldrafundur

Fimmtudaginn 9. september 2010 – kl. 20.00 Foreldrar/forráðmenn nemenda Fjölbrautaskóla Snæfellinga eru boðaðir á foreldrafund fimmtudaginn 9. september 2010 – kl. 20.00 í matsal skólans. Lesa meira
 

6.8.2010 : Upphaf skólastarfs á haustönn 2010

Nýnemadagur 18. ágúst 2010 kl. 10:00. Nýnemar (nemendur sem útskrifuðust úr 10. bekk grunnskóla nú í vor) mæta á sérstakan kynningardag – nýnemadag. Þar verður farið yfir helstu þætti skólastarfsins. Þeir nemendur sem eiga fartölvur eru beðnir um að koma með þær. Gert er ráð fyrir að dagskrá nýnemadags ljúki um kl. 14:00.

Nemendur í framhaldsdeildinni á Patreksfirði mæta á nýnemadag í deildina á Patreksfirði kl. 10:00

Lesa meira
 

10.6.2010 : Breytt fyrirkomulag dreifnáms

Nýjar reglur um dreifnám í Fjölbrautaskóla Snæfellinga sjá hér
 

22.5.2010 : Útskrift 21. maí 2010

Föstudaginn 21. maí brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 14 nemendur, alla með stúdentspróf. Af náttúrufræðibraut útskrifuðust þau Lilja Margrét Riedel, Sveinbjörn Ingi Pálsson og Sæbjörg Lára Másdóttir. Af félagsfræðabraut útskrifuðust Anna Júlía Skúladóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Egill Guðnason, Erla Lind Þórisdóttir, Eva Lind Guðmundsdóttir, Guðmundur Haraldsson, Hallfríður Guðný Ragnarsdóttir, Lárus Gohar Kazmi, Ólafur Hrafn Magnússon, Steinar Darri Emilsson og Sunna Björk Skarphéðinsdóttir.

Lesa meira

 

18.5.2010 : Mötuneyti FSN

Óskað er eftir rekstraraðila til þess að reka mötuneyti FSN skólaárið 2010-2011. Lesa meira
 

6.5.2010 : Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum.

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir framhaldsskólakennurum fyrir haustönn 2010:

Danska – 75% staða
Stærðfræði – 75% afleysingastaða
Íslenska-25% staða                                                                                                                              

Jarðfræði -   25% staða
Landafræði– 25% staða

Lesa meira
 

29.4.2010 : Til hamingju Atli, Daníel og Guðmundur!

Endless Dark í öðru sæti. Lesa meira
 

29.4.2010 : Mjög góður árangur nemanda í landskeppninni í efnafræði

Guðrún Erla Ólafsdóttir, nemandi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, hafnaði í 19. sæti í landskeppninni í efnafræði sem haldin var í byrjun mars en alls tóku þátt í keppninni 139 nemendur frá 11 framhaldsskólum. Lesa meira
 

26.4.2010 : Kennaramenntun í deiglu - samræða um menntun kennara

Árið 2008 voru samþykkt lög frá Alþingi um að menntun kennara á skólastigunum frá leikskóla til framhaldsskóla skuli frá og með júlí 2011 ljúka með meistaragráðu. Í kjölfar lagasetningarinnar hófst vinna við skipulag fimm ára kennaranáms í Kennaraháskóla Íslands og síðan við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Lesa meira

 

13.4.2010 : Nýr skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Jon_EggertJón Eggert Bragason hefur verið skipaður skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga frá og með 1. apríl 2010 til 31. mars 2011.

Jón Eggert var áður aðstoðarskólameistari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ.

Hann tók við af

Skúlínu Hlíf Kjartansdóttur.

 

8.4.2010 : Söngkeppni starfsbrauta.

New_ImageSöngkeppni starfsbrauta framhaldsskólanna fór fram þann 25. mars á Akranesi. Tveir keppendur fóru fyrir hönd FSN þeir Helgi Jóhann Ellertsson og Davíð Einar Davíðsson og fluttu þeir lagið Mýrdalssandur. Söngkeppnin tókst mjög vel í alla staði og stóðu nemendur FSN sig með mikilli prýði og voru skóla sínum til sóma.

 

29.3.2010 : Nemandi FSN í sigurliði í Forritunarkeppni Framhaldsskólanna

Gabríel Arthúr Pétursson, nemandi í FSN, var á meðal sigurvegara í Forritunarkeppni Framhaldsskólanna sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn var. Lesa meira
 

19.3.2010 : Starfsmenn FSN safna yfirvaraskeggi

Stór hluti karlkynskennara skólans hafa tekið sig saman og safnað (mis-)myndarlegum yfirvararskeggjum (svokölluðum (hor-)mottum) í átaki Krabbameinsfélagsins, Karlmenn og krabbamein. Lesa meira
 

5.3.2010 : Söfnun til styrktar hjálparstarfi Unicef á Haití gekk vonum framar

Sólardagar voru haldnir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga nú í febrúar. Þar var brotið upp hefðbundið skólastarf með því að skipuleggja fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir nemendur en um leið ákváðu nokkrir nemendur að skólinn myndi líka láta gott af sér leiða.

Lesa meira
 

2.3.2010 : Íþróttavakning framhaldsskólanna 2010

Íþróttavakning framhaldsskólanna

Íþróttavakning framhaldsskólanna er átak sem stýrihópur um Heilsueflingu og forvarnir kom af stað árið 2009 með hjálp sérsambanda og nemendafélaga um allt land.

Lesa meira
 

15.2.2010 : Vel heppnuðum Sólardögum lokið

Hinir árlegu Sólardagar fóru fram í Fjölbrautaskóla Snæfellinga dagana 11 - 12 febrúar síðastliðinn. Dagarnir eru svokallaðir þemadagar þar sem á hefðbundið nám er brotið upp og nemendur taka þátt í ýmsum námskeiðum og leikjum í staðinn. Sólardögunum lauk svo með stórglæsilegri árshátíð nemenda sem fór fram á föstudagskvöld í félagsheimilinu Klifi í Snæfellsbæ.

Sólardagar í FSN

Lesa meira

 

5.2.2010 : Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2010

Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að framhaldsskólar, nemendur og foreldrar fái meira svigrúm til að undirbúa framhaldsskólavistina. Innritað verður frá 18. janúar til 26. febrúar 2010. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.

Lesa meira

 

8.1.2010 : Regla um læknisvottorð aftur í gildi

Þar sem dregið hefur úr álagi á heilsugæslustöðvar af völdum inflúensu hefur verið send út tilkynning þess efnis að hægt er að sinna gerð veikindavottorða framhaldsskólanema. Því tekur upprunaleg regla gildi um að nemendur skulu skila læknisvottorði ef veikindi vara lengur en þrjá daga:

Lesa meira

 

8.1.2010 : Leiksýning í dag í matsal

Í dag mun leikhópur undir forystu Kára Viðars sýna leikritið DEVOTION í matsal FSN kl. 12.30. Ennfremur munu leikararnir halda námskeið í hláturjóga. Lesa meira
 

8.1.2010 : Hafragrautur

Hafragrauturinn verður ekki lengur í boði skólans, en verður til í mötuneytinu og mun kosta 100 kr.
 

5.1.2010 : Bókalisti fyrir vorönn 2010

Bókalistinn fyrir vorönn 2010 er tilbúinn, hann má nálgast hér
 

24.12.2009 : Útskrift í FSN - 18. desember 2009

Föstudaginn 18. desember brautskráði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 12 nemendur,  alla með stúdentspróf. Lesa meira
 

16.12.2009 : Útskriftarhátíð

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin föstudaginn 18. desember 2009 í hátíðarsal skólans kl. 15.00.

Lesa meira
 

30.11.2009 : Nám á ferð og flugi

Menntaskóli Borgarfjarðar, Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Síminn hafa gert með sér samkomulag um um samvinnu og samstarf við að þróa notkun farsíma í námi og kennslu. Heiti verkefnisins er “Nám á ferð og flugi”. Skrifað var undir samkomulagið föstudaginn 27. nóvember við hátíðlega athöfn í Menntaskóla Borgarfjarðar. Lesa meira
 

25.11.2009 : Tölvuleikir á dagskrá í FSN

Í dag hélt Nathan Richardsson erindi um íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP, aðferðir við gerð tölvuleikja og verkefni félagsins. Lesa meira
 

21.11.2009 : Stjörnufræði, Kerfislífræði og MORFÍS

APPOLLO 11 afmælishátíð NASA í Bandaríkjunum setti svip sinn á skóladaginn s.l. fimmtudag. Lesa meira
 

19.11.2009 : Beinar útsendingar frá NASA og Morfís

Afmælishátíð Apollo, slóð á beina útsendingu: http://secure.emission.is/player/?e=45f90fe9-3db8-4ee3-92b0-53a791b81bb4

Morfís, bein útsending í kvöld: Slóð á beina útsendingu: http://secure.emission.is/player/?e=461ab16f-ac5c-4f9c-b4d9-6bf99b5452f5

 

11.11.2009 : FSN tekur þátt í fjarfundi með NASA

Fjölbrautaskóli Snæfellinga hefur verið valinn til þátttöku í APPOLLO 11 afmælishátíð NASA í Bandaríkjunum, sem um þessar mundir heldur upp á að 40 ár eru liðin síðan maður setti fyrst fót á tunglið. Lesa meira
 

9.11.2009 : Hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna

Snilldarlausnir, hugmyndasamkeppni framhaldsskóla er einn stærsti einstaki þáttur Alþjóðlegrar Athafnaviku á Íslandi og fer keppnin nú fram í fyrsta sinn.

Lesa meira
 

22.10.2009 : Haustfrí 23. - 26. október

Á morgun 23. október hefst haustfrí í skólanum, kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þann 27. október, skrifstofan verður einnig lokuð.
 

16.10.2009 : Veikindatilkynningar

Nemendur í framhaldsskólum eru tímabundið undanþegnir skilum á veikindavottorði vegna mikils álags á heilsugæsluna í landinu. Lesa meira
 

7.10.2009 : Kaffihúsakvöld í FSN

Kaffihúsakvöld var haldið á vegum nemendafélags FSN þriðjudaginn 6. október í húsakynnum skólans. Mjög góð mæting var á kvöldið og bauðst nemendum í 10.bekk úr grunnskólum Snæfellsness að koma og kynna sér starfsemi nemendafélagsins. Nemendur frá Patreksfirði eru staddir í Grundarfirði þessa dagana og létu þeir sig ekki vanta á skemmtunina í gærkvöldi. Lesa meira
 

6.10.2009 : Fjarnámsnemar frá Vestfjörðum í heimsókn

Þessa dagana eru Vestfirðingar úr framhaldsdeildinni á Patreksfirði í heimsókn og eru þau 31 í þessari ferð. Lesa meira
 

24.9.2009 : Fjör á útivistardegi FSN

Útivistadagur var haldinn í FSN miðvikudaginn 23. september. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá og þótti dagurinn hafa heppnast vel .

                  

Lesa meira
 

11.9.2009 : Viðbragðsáætlun Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Gerð hefur verið Viðbragðsáætlun Fjölbrautaskóla Snæfellinga vegna heimsfaraldurs inflúensu. Áætlunin er í samræmi við Landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu og hefur það að markmiði að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnana sem og starfsmanna þeirra þegar til inflúensufaraldurs kemur. Lesa meira
 

4.9.2009 : Busadagur að baki

 

21.8.2009 : Skólasetning í FSN

Skólasetning í Fjölbrautaskóla Snæfellinga var föstudag 21.ágúst. Í ár innrituðust 125 nemendur og nýnemar úr grunnskóla sem hefja nám í FSN þetta haust eru 73 talsins. Fjarnámsdeildin á Patreksfirði bætir stöðugt við sig nemendum og þar verða 32 nemendur í vetur, sem er töluverð fjölgun. Heildarfjöldi nemenda er 277. Lesa meira
 

14.8.2009 : Ræstingar

Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir því að ráða starfsmann í ræstingar.

Umsóknarfrestur er til 30. ágúst 2009.

Lesa meira

 

13.8.2009 : Eldri nemendur og dreifnemendur sem eru að hefja skólagöngu í FSN í fyrsta sinn

Stundatöfluafhending er mánudaginn 17. ágúst á milli 14:00-15:00 Lesa meira
 

26.6.2009 : Stuðningsfulltrúar

Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir því að ráða stuðningsfulltrúa. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2009. Lesa meira
 

26.6.2009 : Rekstur mötuneytis Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir tilboðum í rekstur mötuneytis við skólann. Lesa meira
 

11.6.2009 : Bókalisti haustönn 2009

Bókalistinn fyrir haustönn 2009 er tilbúin og hann má nálgast hér
 

27.5.2009 : Fréttir af útskrift í Fjölbrautaskóla Snæfellinga vor 2009.

utsrift

Laugardaginn 23. maí lauk Fjölbrautaskóli Snæfellinga sínu fimmta starfsári og útskrifaði 11 nemendur, með stúdentspróf.

Lesa meira
 

14.5.2009 : Auglýsing

Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði auglýsir eftir framhaldsskólakennurum.

Umsóknarfrestur rennur út 9. júní 2009.

Lesa meira
 

14.5.2009 : Umsóknir um nám í framhaldsskólum á haustönn 2009

Innritun í dagskóla fer fram dagana 15. maí - 11. júní 2009. Hægt að sækja um  veflykla í gegn um www.menntagatt.is

Lesa meira
 

13.5.2009 : Framhaldsskólanemendur.

Framhaldsskólanemendur sem ekki hafa fengið vinnu í sumar og hyggjast sækja um atvinnuleysisbætur.

Lesa meira

 

12.5.2009 : Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands

Ellefu styrkir verða veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní nk. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds í Háskólann, sem er 45.000 krónur. 

Lesa meira

 

6.5.2009 : SAFT UNGMENNARÁÐ

Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, hefur hafið undirbúning að stofnun ungmennaráðs.

Lesa meira

 

25.3.2009 : Nýr skólameistari ráðinn

Búið er að ráða skólameistara en það er Skúlína Hlíf Kjartansdóttir. Við bjóðum hana velkomna til starfa.

 

19.3.2009 : Íþróttamót framhaldsskólanna

Stelpurnar í NFSN unnu leikinn. Lesa meira
 

19.2.2009 : Frí á föstudaginn!

Föstudagurinn 20. febrúar 2009. Lesa meira
 

19.2.2009 : Sólardagar

Sólardagar(áður þemadagar) standa nú yfir í FSN. Lesa meira
 

20.1.2009 : Nýr skólameistari

Pétur Ingi Guðmundsson aðstoðarskólameistari hefur verið settur skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga þar til nýr skólameistari verður ráðinn.
 

5.1.2009 : Námskeið fyrir nýja nemendur

Námskeið í notkun Angel kennslukerfisins og vefpóstsins verður haldið miðvikudaginn 7. janúar, strax eftir skólasetningu, kl. 9:45 í Fiskabúrinu.
 

2.1.2009 : Mikilvægar upplýsingar fyrir dreifnámsnemendur

Nýjar reglur og leiðbeiningar um dreifnám má finna hér. Mikilvægt er að dreifnámsnemendur kynni sér reglurnar vel og ákveði í samráði við kennara hvaða leið þeir velja sér í náminu.
 

1.12.2008 : Fyrsti sigurinn í Morfís keppninni.

Við mættum 25 galvaskir FSN-ingar í Skeifuna á föstudagskvöld nánar tiltekið í Menntaskólann Hraðbraut til þess að etja þar kappi í Morfís, Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna. Lesa meira
 

21.11.2008 : Íþróttavakning framhaldsskólanna

Góð þátttaka var í fyrsta viðburði í íþróttavakningu framhaldsskólanna síðastliðinn miðvikudag. 85 nemendur og 10 starfsmenn lögðu að baki 3 kílómetra hér í Grundarfirði.  Einnig tóku 15 nemendur og 2 starfsmenn við framhaldsdeildina á Patreksfirði þátt í þessum fyrsta viðburði.  Við fáum eitt stig fyrir hvern nemanda og þess vegna er mikilvægt að sem flestir taki þátt. Fleiri viðburðir verða eftir áramót og vonandi verðum við jafn öflug þá.

 

4.11.2008 : Ný menntastefna - kynning á nýjum lögum um skóla og menntun

Fundur menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga til kynningar og umræðna um ný lög um skóla og menntun verður haldinn fyrir sunnanverða Vestfirði og Snæfellsnes á Patreksfirði, nk. þriðjudag 11. nóvember kl. 16:00-18:00.

Lesa meira
 

28.10.2008 : Sagnasamkeppni Rökkurdaga í Grundarfirði.

Nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga lentu í fyrsta og öðru sæti. Lesa meira
 

10.10.2008 : Til foreldra frá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra

Foreldrar eiga það sameiginlegt að vilja að börnum þeirra líði vel. Lesa meira
 

25.9.2008 : Kaffihúsakvöld í kvöld 25. september kl. 20:00

Rútur fara frá Hellisandi kl. 19:30, frá Rifi kl. 19:35, frá Ólafsvík kl. 19:40 & frá Stykkishólmi kl. 19:35. Heimferð til allra staðanna kl. 22:30. Lesa meira
 

11.9.2008 : Kósý kvöld 11. september í FSN

Í kvöld stendur NFSN fyrir kósý kvöldi í FSN. Lesa meira
 

9.9.2008 : Foreldrafundur miðvikudaginn 17. september 2008 kl. 20:00.

Boðað er til kvöldfundar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga með foreldrum/forráðamönnum nemenda skólans miðvikudaginn 17. september 2008 kl. 20:00. Lesa meira
 

4.9.2008 : Busaball í kvöld 4. september

Rútur á busaball verða frá Hellisandi kl. 21:15, Rifi kl. 21:20 og Ólafsvík kl. 21:25. Lesa meira
 

21.8.2008 : Skólasetning 22. ágúst 2008

Föstudaginn 22. ágúst kl. 8:30 verður skólasetning á sal skólans. Kennsla samkvæmt sérstakri stundatöflu hefst að henni lokinni. Minnt er á að bókalisti er birtur á vef skólans, www.fsn.is og eru nemendur hvattir til að ljúka bókakaupum áður en kennsla hefst.

Lesa meira
 

11.8.2008 : Upphaf skólastarfs á haustönn 2008

Nýnemadagur 18. ágúst, stundatöfluafhending eldri nema 19. ágúst, skólasetning 22. ágúst og kynningarfundur með nýjum eldri nemum 22. ágúst. Lesa meira
 

16.6.2008 : Stuðningsfulltrúar

Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar að ráða stuðningsfulltrúa í þrjár 100% stöður skólaárið 2008-2009. Lesa meira
 

23.5.2008 : Fjölbrautaskóli Snæfellinga útskrifar í sjötta sinn.

Föstudaginn 23. maí 2008 útskrifaði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 12 nemendur með stúdentspróf. Lesa meira
 

21.5.2008 : Útskriftarhátíð 23. maí 2008 kl. 15:00

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin föstudaginn 23. maí 2008 í hátíðarsal skólans. Hátíðin hefst kl.15:00 og að henni lokinni verða kaffiveitingar í boði skólans.

Allir velunnarar skólans eru velkomnir.

 

20.5.2008 : Einkunnaafhending og prófsýning

20. maí í Fjölbrautaskóla Snæfellinga kl. 11:30-12:30. Lesa meira
 

13.5.2008 : Innritun í Fjölbrautaskóla Snæfellinga á haustönn 2008

Innritun í Fjölbrautaskóla Snæfellinga hefst 14. maí og stendur til 11. júní. Innritunin er rafræn og framkvæmd gegnum netið. Lesa meira
 

3.4.2008 : Rútuferðir á opnum degi.

Frá Stykkishólmi

kl. 09:20 (Íþróttamiðstöð)

Frá Hellissandi

kl. 09:10 (Hraðbúð Esso)

Frá Rifi

kl. 09:15

Frá Ólafsvík

kl. 09:25 (Íþróttahús)

Rúturnar fara til baka frá skólanum kl.15.00

 Minni á að það er frí á mánudaginn.

 

10.3.2008 : Stelpurnar okkar deildarmeistarar!

IMG_4160-gaSnæfellsstúlkur (og þar á meðal eru margar af okkar stelpum) hafa staðið sig vel í 1. deild kvenna í körfubolta í vetur. Þær tryggðu sér um helgina deildarmeistaratitilinn, en þær eru taplausar og eiga aðeins einn leik eftir á móti Njarðvík þann 28. mars. Til hamingju stelpur!

 

30.1.2008 : Bókasöfn á Snæfellsnesi - samstarf og opnunartímar

Minnum á að skólinn er í samstarfi við bókasöfnin á Snæfellsnesi og geta nemendur leitað til bókasafnanna og fengið aðstoð og bækur að láni. Upplýsingar um opnunartíma og netföng er að finna hér.
 

8.1.2008 : Nýjar reglur um mætingu í fastar kennslustundir

Samkvæmt skólareglum ber nemendum í reglulegu námi að mæta í allar fastar kennslustundir. Mæting hefur ekki verið nógu góð að undanförnu og því hefur verið ákveðið að setja strangari reglur um mætingu í fastar kennslustundir: Lesa meira
 
DSCF4247

27.12.2007 : Skilaboð frá samráðsfundum

Í framhaldi af úttekt sem menntamálaráðuneytið lét gera á starfsemi Fjölbrautaskóla Snæfellinga síðastliðið vor ákváðu stjórnendur skólans að efna til víðtækrar samræðu um skólann og stefnumótun til framtíðar. Lesa meira
 

18.12.2007 : Útskriftarhátíð 21. desember 2007 kl. 15:00

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin föstudaginn 21. desember 2007 í hátíðarsal skólans. Lesa meira
 
DSCF4255

4.12.2007 : Fjölbrautaskóli Snæfellinga haldi áfram að vera framsækinn og leiðandi

Mjög almenn ánægja er með starf Fjölbrautaskóla Snæfellinga, meðal nemenda, starfsfólks, foreldra, sveitarstjórnarfólks og annarra heimamanna. Lesa meira
 

23.11.2007 : Morfís

Fimmtudaginn 16. nóvember fór hópur á vegum skólans og nemendafélagssins til Egilsstaða til að taka þátt í Morfís, ræðukeppni framhaldsskólanna. Lesa meira
 

16.11.2007 : Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni dags íslenskrar tungu unnu nemendur í íslenskuáföngum ýmis verkefni. Lesa meira
 
IMGP2821

8.11.2007 : Fúsi í Fúsaskurðum

Í gær, miðvikudaginn 7. nóvember, fóru nemendur í þróunaráfanganum SNÆ með afrakstur þjóðsagnavinnu sinnar í Fúsaskurði.

Lesa meira
 

2.11.2007 : Úttekt á starfsemi skólans fyrstu árin

Menntamálaráðuneytið hefur látið gera úttekt á starfsemi skólans fyrstu þrjú árin. Lesa meira
 

10.10.2007 : Þeir sem taka rútuna verða að sækja um jöfnunarstyrkinn strax í dag

1.       Skráið ykkur inn á INNU, ykkar heimasvæði.

 2.       Smellið á hnappinn ,,LÍN"  á ykkar heimasvæði.

 3.       Smellið á hnappinn ,,tengjast LÍN"

 4.       Smellið á ,,sækja um"

 5.       Smellið á ,,jöfnunarstyrkur 07-08"

 

Nánari leiðbeiningar má finna í póstinum ykkar.

 

20.9.2007 : Veðramót í Sögumiðstöðinni í boði Kaupþings

Vedramot_0299491Sælir nemendur!

Á morgun eftir skóla kl. 13.30 er ykkur boðið að koma í Sögumiðstöðina í Grundarfirði til þess að sjá glænýja mynd Guðnýjar Halldórsdóttur sem heitir Veðramót. Það kostar 1000 krónur inn á myndina en Kaupþing banki ætlar að styrkja ykkur og borga þá upphæð. Ef þið hafið áhuga á að sjá myndina verðið þið að koma á skrifstofuna í dag og í fyrramálið og skrá ykkur. Fyrstur kemur fyrstur fær!! Að lokinni sýningu fer rúta til Snæfellsbæjar og Stykkishólms.

Rútur fara frá FSN kl. 15:40 til Ólafsvíkur og Stykkishólms.

 

12.9.2007 : Foreldrafundur 19. september kl. 20:00

Boðað er til kvöldfundar með foreldrum/forráðamönnum nemenda skólans miðvikudaginn 19. september 2007 kl. 20:00. Lesa meira
 

11.9.2007 : Ný slóð inn á Angel

Nýja slóðin á Angel er: http://oddi.fsu.is

 
Undirritun-080807-2

13.8.2007 : Framhaldsskóladeild FSN á Patreksfirði opnuð formlega

Miðvikudaginn 8. ágúst var framhaldsskóladeild FSN opnuð formlega á Patreksfirði að viðstöddu fjölmenni. Lesa meira
 

13.8.2007 : Upphaf skólastarfs á haustönn 2007

Stundatöfluafhending 20. ágúst og skólasetning 22. ágúst. Lesa meira
 

19.6.2007 : 30 brúttólesta réttindanám

Skipstjórnarnámskeið í samstarfi Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Fjöltækniskóla Íslands. Fyrirhugað er að halda námskeið á Snæfellsnesi til að öðlast 30 brúttólesta skipstjórnarréttindi í haust ef næg þátttaka fæst. Lesa meira
 

5.6.2007 : Nýtt áfangagjald í dreifnámi

Innritun fyrir haustönn 2007 stendur yfir og lýkur 11. júní. Tekið er við umsóknum á allar brautir skólans, bæði í dagskólanám og dreifnám. Lesa meira
 

29.5.2007 : Útskrift 17. maí 2007

Fimmtudaginn 17. maí, uppstigningardag útskrifaði Fjölbrautaskóli Snæfellinga 21 nemanda. Sex nemendur brautskráðust með stúdentspróf, tveir nemendur af starfsbraut og 13 af vélstjórnarbraut 1. stigi. Lesa meira
 

15.5.2007 : Bárður Snæfellsás

Nemendur í þróunaráfanganum SNÆ hafa í vetur unnið með söguna um Bárð Sæfellsás, en þar sem sagan þótti nokkuð flókin var ákveðið að reyna að gera hana auðskiljanlegri með því að gera úr henni leiksýningu/margmiðlunarsýningu. Sýningin tók langan tíma í undirbúningi, jafnvel þó hún sé ekki nema rúmar 30 mínútur í flutningi, en hún var tilbúin daginn áður en hópurinn hélt til Svíþjóðar til að sýna hana þar á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Haninge sem er úthverfi Stokkhólms.  Ein sýning hefur verið hér í skólanum, en það var sl. sunnudag og má sjá umfjöllun Skessuhorns um hana hér.
 

25.4.2007 : Söngkeppni framhaldsskólanna

Föstudaginn 13. apríl var farin ferð á vegum skólans til Akureyrar, 24 nemendur og 2 starfsmenn. Tilgangur ferðarinnar var að styðja okkar fólk í Söngkeppni framhaldsskólanna. Við vorum komin á Akureyri um kvöldmatarleyti í blíðviðri og komum okkur fyrir í einni skólastofu í MA. Þegar búið var að blása upp ógrynni af vindsængum var miðbær Akureyrar skoðaður og allir fengu sér að borða á hinum ýmsu stöðum bæjarins. Á laugardaginn var frjáls tími fram að keppninni og flestir notuðu tækifærið til að fara í sund, tölta kirkjutröppurnar og versla. Við mættum hress í Íþróttahöllina um kvöldið og auðvitað sátum við fremst og hvöttum okkar fólk með miklum hrópum og köllum. Keppnin var frábær og öll atriðin voru flott - okkar var auðvitað flottast!! Eftir keppnina var ball með Hljómsveitinni Buff og DJ Páli Óskari þar sem allir dönsuðu inn í nóttina. Það voru þreytt en glöð ungmenni sem sváfu í rútunni á leiðinni heim!!
 

12.3.2007 : Forritunarlið FSN stóð sig með prýði

Lið FSN sem tók þátt í Forritunarkeppni framhaldsskólanna á laugardaginn var stóð sig vel og hafnaði í 5. sæti í delta deild. Þetta er góður árangur hjá liði sem er að taka þátt í keppninni í fyrsta sinn. Að keppninni lokinni sögðust þeir félagar, Adam, Eyjólfur og Hákon ákveðnir í að mæta tvíefldir aftur að ári enda hefði þetta verið stórskemmtilegt og lærdómsríkt. Vakin er athygli á að hver framhaldsskóli má senda fleiri en eitt lið í keppnina.
 

7.3.2007 : FSN sendir lið í Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Forritunarkeppni framhaldsskólanna verður haldin í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn kemur. FSN sendir lið í keppnina í fyrsta sinn. Liðið skipa:

Adam Steinn Guðmundsson
Eyjólfur Fannar Sch Jónsson og
Hákon Ingi HaraldssonPICT0024













Við óskum þeim góðs gengis.

 

14.2.2007 : Þemadagar 2007

Þemadagar 2007 verða haldnir í skólanum 15. og 16. febrúar. Skoðið dagskrána hér.
 

9.1.2007 : Úrsögn úr áföngum á vorönn 2007

Á vorönn 2007 hafa nemendur frest til 26. janúar 2007 til að segja sig úr áföngum. Þeir sem óska eftir að segja sig úr áfanga eru beðnir að hafa samband við aðstoðarskólameistara. Eftir 26. janúar hafa nemendur ekki leyfi til að hætta í áfanga. Komi upp einhverjar óviðráðanlegar aðstæður sem gera það að verkum að nemendur telja sig þurfa að hætta í áfanga eru þeir beðnir um að tala við námsráðgjafa eða stjórnendur.

 
Stúdentar 20. des. 2006

21.12.2006 : Tíu stúdentar útskrifaðir

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga var haldin í þriðja sinn 20. desember. Þá voru tíu nemendur brautskráðir frá skólanum, allir með stúdentspróf.
 

28.11.2006 : Námsferð til Reykjavíkur

Ferðin er farin með það í huga að kynna fyrir nemendum listir og menningu af ýmsum toga ásamt því að hafa gaman saman.

Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 og aftur heim kl. 20:00 frá Smáralind.

 

2.11.2006 : Umsókn um skólavist á vorönn 2007

Nýir nemendur sem vilja sækja um skólavist í FSN á vorönn 2007 geta nálgast umsóknareyðublað hér. Tekið er við umsóknum á allar brautir skólans, bæði í staðbundið nám og dreifnám. Upplýsingar um áfanga í boði má nálgast hér. Umsóknarfrestur er til 21. nóvember.
 

31.10.2006 : Framhaldsskóladeild á Patreksfirði í samvinnu við Fjölbrautaskóla Snæfellinga næsta haust

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hefur ákveðið að hefja tilraunaverkefni um rekstur framhaldsdeildar á Patreksfirði fyrir nemendur á fyrsta og öðru ári í framhaldsskóla. Deildin verður rekin í nánu samstarfi eða undir stjórn Fjölbrautaskóla Snæfellinga og stuðst við þá reynslu sem þar hefur fengist með því að blanda saman staðbundnu námi og dreifnámi. Lesa meira
 

27.10.2006 : Haustfrí á mánudaginn. Á mánudaginn kemur þann 30. október er haustfrí í FSN. Megi allir hafa það gott í fríinu. Skólastjórnendur.

 

11.10.2006 : Ferð á “paintball” mót í Hafnarfirði

Föstudaginn 13. október verður haldið “paintball” mót framhaldsskólanna í Straumsvík í Hafnarfirði. Stór hópur nemenda skólans tekur þátt í mótinu, en til þess að fá að taka þátt þurfa allir nemendur sem eru yngri en 18 ára að vera með leyfi frá foreldrum (eyðublöð liggja frammi á skrifstofunni).

Lesa meira
 
xIMGP1797

5.10.2006 : Fyrsta fimmtudagsflippið

Í dag í fundartímanum var fyrsta fimmtudagsflipp annarinnar. Í þetta skipti var spiluð félagsvist og skemmtu allir sér mjög vel eins og sjá má á myndunum.

Lesa meira

 
Jon_Steinar

26.9.2006 : Golfmót nemendafélagsins

Golfmót nemendafélagsins var haldið á föstudaginn 22. september á Bárarvelli við Grundarfjörð. Notast var við punktafyrirkomulag. Keppnin var æsispennandi. Sigurvegari var Gísli Valur Arnarson eftir bráðabana við Heimi Þór Ásgeirsson. Lesa meira
 

18.9.2006 : Dagatal haustannar 2006

Hér til hliðar má skoða dagatal haustannar, mánuð fyrir mánuð. Einnig er hægt að nálgast dagatalið í heild hér.
 
IMGP1635

8.9.2006 : Busar vígðir inn í skólastarfið

Nýnemar voru vígðir inn í skólalífið á táknrænan hátt fimmtudaginn 7. september.

Lesa meira
 

31.8.2006 : Biskup Íslands í heimsókn

Mánudaginn 28. ágúst kom biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson í heimsókn í skólann ásamt séra Gunnari Eiríki Haukssyni prófasti Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmis og eiginkonum þeirra beggja. Lesa meira
 

21.8.2006 : Sérstök stundatafla þriðjudaginn 22. ágúst

Þriðjudaginn 22. ágúst er kennt samkvæmt sérstakri stundatöflu sem miðar að því að nemendur geti hitt sem flesta af kennurum sínum þennan dag. Töfluna má sækja hér.
 

10.8.2006 : Upphaf skólastarfs á haustönn 2006

Stundatöfluafhending 18. ágúst og skólasetning 22. ágúst. Lesa meira
 

27.6.2006 : Sumarfrí

Skólinn verður lokaður frá 10. júlí til 31. júli 2006 vegna sumarleyfis starfsmanna. Hægt er að hafa samband við skólameistara í síma 8649729 eða á netfangið gudbjorg@fsn.is.
 

19.5.2006 : Útskriftarhátíð 20. maí 2006 kl. 14:00

Útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldin laugardaginn 20. maí 2006 í hátíðarsal skólans og verða fjórir stúdentar brautskráðir. Hátíðin hefst kl. 14:00 og að henni lokinni verða kaffiveitingar í boði skólans.

Allir velunnarar skólans eru velkomnir.

 

9.5.2006 : Viðtalstímar hjá námsráðgjafa

Á tímabilinu 1. – 12. júní verða viðtalstímar hjá námsráðgjafa í boði fyrir umsækjendur. Una Jóhannesdóttir námsráðgjafi verður til viðtals þessa daga, en tekið er við pöntunum á skrifstofu skólans.

 
Verðlaunahafarnir

2.5.2006 : Bridgemót

Sunnudaginn 30.apríl var haldið framhaldsskólamót FSN í bridge, með fyrirkomulaginu vanur/óvanur. Félagar í Bridgefélagi Grundarfjarðar tóku þátt í mótinu ásamt nemendum FSN og fór mótið mjög vel fram. Úrslit voru eftirfarandi:

1. sæti: Guðmundur Karl Magnússon og Eyjólfur Sigurðsson.

2. sæti: Jón Steinar Ólafsson og Ragnar Haraldsson.

3. sæti: Baldur Guðjónsson og Sveinn Ingi Ragnarsson.

Lesa meira
 

20.3.2006 : Myndlist

Nemendur í myndlistarvali FSN voru ánægðir með höfðinglega gjöf frá Blóma- og gjafavöruversluninni Ilmi í Stykkishólmi.
Alda Baldursdóttir kennari þeirra vill koma á framfæri kæru þakklæti en myndlistarvalið fékk fullt af efni sem mun nýtast í bókagerð sem og ýmsa aðra listvinnu.

 
UT2006

27.2.2006 : UT2006

Föstudaginn 3. mars verður UT2006 ráðstefnan haldin í skólanum. Ráðstefnan er á vegum menntamálaráðuneytisins og þar verður á boðstólum ýmislegt af því sem er að gerast í skólakerfinu með áherslu á sveigjanleika í kennsluháttum og upplýsingatækni. Lesa meira
 
Nemendur í málmsuðu

24.2.2006 : Vélstjórnarnám

Í gær 23. febrúar hófst nám á vélstjórnarbraut 1. stigs hér við skólann. Um 20 nemendur eru skráðir í námið víðs vegar af Snæfellsnesi. Lesa meira
 
Stjórn NFSN á árshátíð

17.2.2006 : Árshátíð NFSN

Þann 10. febrúar sl. var árshátíð NFSN haldin með pompi og pragt í hátíðarsal skólans. Bar árshátíðin keim af því að stutt var í Valintínusardaginn og var salurinn skreyttur hátt og lágt með hjartalaga blöðrum og rósarblöðum. Lesa meira
 
Danssmiðja

9.2.2006 : Þemadagar

Í gær, miðvikudaginn 8. febrúar hófust þemadagar hér í skólanum og standa þeir fram á föstudag. Allskonar „smiðjur” eða önnur afþreying eru í boði.

Lesa meira
 

7.2.2006 : Gestir frá Svíþjóð og Finnlandi

Undanfarna tvo daga hafa verið í heimsókn hjá okkur kennarar frá Svíþjóð og Finnlandi. Tilefni heimsóknar þeirra er að skoða möguleika á þemaverkefni í samstarfi skólanna. Stefnt er á samstarf með möguleika á nemendaheimsóknum. Þemað sem vinna á út frá eru þjóðsögur og goðsagnir í nærumhverfinu.
 
Kór Fjölbrautaskóla Snæfellinga

19.12.2005 : Fyrsta útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Laugardaginn 17. desember 2005 var fyrsta brautskráning nemenda frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þá voru brautskráðir fjórir stúdentar, þrír af félagsfræðabraut og einn með viðbótarnám til stúdentsprófs. Lesa meira
 
DSC00484

6.12.2005 : Fyrstu tónleikar kórs Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Kór Fjölbrautaskólans hélt aðventutónleika í Grundarfjarðarkirkju síðastliðið sunnudagskvöld. Lesa meira
 
Hópur í Þjóðminjasafninu

30.11.2005 : Menningarferð

Á degi íslenskar tungu þann 16. nóvember síðastliðinn fóru um það bil 110 nemendur ásamt kennurum í menningarferð til Reykjavíkur.

Lesa meira
 

18.10.2005 : Áfangar í boði fyrir vorönn 2006

Áfangar í boði fyrir vorönn 2006 eru tilbúnir og þá er hægt að skoða hér.
 
Busavigsla-05_002

8.9.2005 : Fjörug busavígsla!

Mikið fjör var í skólanum í dag þegar eldri nemendur vígðu busana inn í skólalífið. Eins og meðfylgjandi myndir sýna skemmtu allir sér vel - bæði busar og busarar. Lesa meira
 

7.9.2005 : Foreldrafundur 14. september kl. 20:00

Boðað er til kvöldfundar með foreldrum/forráðamönnum nemenda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga miðvikudaginn 14. september kl. 20:00.

Lesa meira
 
Nemendur á skólasetningu

24.8.2005 : Skólasetning

Skólasetning haustannar fór fram á sal skólans kl. 8:30 mánudaginn 22. ágúst. Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari bauð nemendur velkomna og hvatti þá til að stunda námið af kostgæfni. Í máli hennar kom einnig fram að á haustönninni munu um 190 nemendur stunda nám í skólanum. Lesa meira
 

20.7.2005 : Bókalistinn tilbúinn!

Bókalisti fyrir haustönn 2005 er tilbúinn. Hann er hægt að nálgast hér.
 

30.6.2005 : Rúmlega 180 nemendur á haustönn 2005

Nú er innritun fyrir haustönn 2005 lokið og gekk vel. Ljóst er að rúmlega 180 nemendur munu stunda nám í skólanum á haustönninni. Þetta eru töluvert fleiri nemendur en síðastliðinn vetur og hefur því starfsmönnum einnig verið fjölgað.
 

9.6.2005 : Heimsókn forstöðumanna fjármála- og stjórnsýslusviða bæjarstjórna

Laugardaginn 28. maí síðastliðinn heimsóttu okkur forstöðumenn fjármála- og stjórnsýslusviða bæjarstjórna af öllu landinu. Þau voru í vorferð á Snæfellsnesi og kynntu sér ýmislegt, þar á meðal skólann okkar. Pétur Ingi aðstoðarskólameistari tók á móti hópnum og fylgdi honum um húsnæði skólans.
 

8.6.2005 : Heimsókn frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ

Þriðjudaginn 24. maí síðastliðinn fengum við heimsókn frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í tengslum við vorferð skólans. Þar voru á fegardabaerrð kennarar og annað starfsfólk skólans. Gestirnir skoðuðu sig um undir leiðsögn Guðbjargar skólameistara og leist almennt vel á.
 
armuli

7.6.2005 : Heimsókn frá Fjölbraut við Ármúla

Mánudaginn 23. maí síðastliðinn fengum við heimsókn frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla í tengslum við vorferð skólans. Þar voru á ferð kennarar og annað starfsfólk skólans. Gestirnir skoðuðu sig um undir leiðsögn Guðbjargar skólameistara og fannst mikið til koma.
 

26.5.2005 : Fundur með rafeinda- og rafvirkjameisturum 31. maí

Rafeinda- og rafvirkjameistarar á Snæfellsnesi eru boðaðir til fundar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þriðjudaginn 31. maí kl. 20:00 í skólanum.

Fundarefni:
Fyrirhugað samstarf Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Iðnskólans í Reykjavík og rafeinda- og rafvirkjameistara á Snæfellsnesi um nám í rafvirkjun fyrir nemendur á Snæfellsnesi.
Kennarar frá Iðnskólanum í Reykjavík koma á fundinn og kynna fyrirhugaða útfærslu á verkefninu.

 

12.5.2005 : Ferð á Snæfellsjökul

Nemendur í lífsleikni fóru á Snæfellsjökul 28. apríl sl.
Þau fóru á toppinn með snjótroðara og ýmist renndu
sér niður á skíðum, sleða, þotu eða á svörtum plastpokum.
Allir skemmtu sér vel í ferðinni sem lauk með því að
borðað var saman á Arnarstapa. Þökkum foreldrum
tveggja nemenda kærlega fyrir að aðstoða við að
ferja nemendur á áfangastað. Sjá má myndir úr
ferðinni á eftirfarandi slóð.

 

6.5.2005 : Angel komið í lag

Búið er að laga villuna sem birtist í Angel svo nú geta allir komist inn á venjulegan hátt.
 

5.5.2005 : Villa í Angel

Nemendur athugið: Á meðan verið er að laga þessa bilun í Angel er hægt að komast inn eftir smávegis krókaleiðum: Þið farið inn í Angel – smellið á áfangann sem þið ætlið að skoða – þá kemur “Page cannot be displayed” – þið smellið á back-örina – þá fáið þið aðalsíðuna ykkar aftur – smellið á áfangann og komist inn í hann. Það er sem sagt hægt að komast svona inn og skoða allt en ekki gera neitt annað.

 

5.5.2005 : Villa í Angel

Við viljum vekja athygli nemenda á því að komið hefur fram villa í Angel sem veldur því að ekki er hægt að komast inn í áfanga. Unnið er að því að komast að hvað veldur þessarri villu. Vonandi kemst þetta í lag fljótlega og verður sett tilkynning inn á vef skólans þegar eitthvað frekar fréttist af gangi mála.
 
Helga Braga

25.4.2005 : Vel heppnaðir þemadagar að baki

Eins og fram hefur komið hér á síðunni voru þemadagar í síðustu viku. Þar var ýmislegt á boðstólnum, t.d. námskeið í ullarþæfingu, förðun og jóga, einnig var farið í siglingu út að þorskeldinu hér í Grundarfirði, Helga Braga kom og kenndi hvernig á að daðra og fara á deit, ennfremur var nokkur fjöldi sem spilaði félagsvist og þreytti sig í skáklistinni.
Lesa meira
 
Astralir

19.4.2005 : Gestkvæmt að undanförnu

Á undanförnum vikum hefur verið sérlega gestkvæmt í skólanum og fjöldi góðra gesta heiðrað okkur með komu sinni. Lesa meira
 
afhending2

1.4.2005 : Rótarýklúbbur Ólafsvíkur færir nemendum gjöf

Miðvikudaginn 30. mars síðastliðinn komu félagar Rótarýklúbbs Ólafsvíkur í heimsókn. Þeir skoðuðu skólann og voru almennt sammála um að vel hefði tekist til með hönnun og byggingu hans og fannst þeim gott og hlýlegt andrúmsloft innan veggja hans. Þeir afhentuahendingnem Pétri aðstoðarskólameistara gjöf til nemendafélagsins sem hann svo afhenti nemendum daginn eftir þar sem heimsóknin var að kvöldi til. Gjöfin var forláta stafræn Sony myndavél. Hún mun koma að góðum notum við hin ýmsu tækifæri hjá nemendum skólans. Á fyrri myndinni afhendir Sævar Þórjónsson, forseti klúbbsins Pétri gjöfina en á seinni myndinni afhendir Pétur Gísla Sveini Gretarssyni gjöfina en hann tók við henni fyrir hönd nemendafélagsins.
 
Sigurbjörg að syngja sigurlagið aftur

10.3.2005 : Fantasíukvöld og Gólið

Í gærkvöldi 9. mars var haldið Skemmtikvöld NFSN þar sem m.a. var keppt í förðun, annars vegar gala og hins vegar fantasíu en einnig var haldin undankeppni fyrir sönvakeppni framhaldsskólanna. Hér til hliðar má sjá sigurvegarann í söngvakeppninni Sigurbjörgu Evu Stefánsdóttur syngja sigurlagið. Ef smellt er á lesa meira má sjá fleiri myndir frá kvöldinu. 

Lesa meira

 

8.3.2005 : Verkefnasíður nemenda í íslensku

Búið er að stofna heimasíður fyrir nokkra íslenskuáfanga þar sem kennari og nemendur munu setja inn alls kyns upplýsingar og verkefni. Síðuna má nálgast með því að smella hér.

 
Klemenz ræðir við nemendur

3.3.2005 : Kennsla hefst að nýju

Í dag 3. mars hófst kennsla að nýju að loknum lotuprófum. Til viðbótar við hefðbundna kennslu kom Klemenz Sæmundsson kennari í næringarfræði og hitti nemendur sína hér við skólann. Klemenz er einn af gestakennurunum við skólann þessa önn og er þetta í annað sinn sem hann kemur. Lesa meira
 
Dali

1.3.2005 : Dali eftirprentanir að gjöf

Sigríður G. Arnardóttir kennari við skólann gaf skólabókasafninu 6 eftirprentanir eftir Salvador Dali.

Myndmenntakennarinn var að vonum glaður og það erum við auðvitað öll þegar við fáum góðar gjafir.

Færum Sigríði okkar bestu þakkir fyrir.

Lesa meira

 
Stærðfræðipróf 24. febrúar 2005

25.2.2005 : Fyrsta próf

Í gær, fimmtudaginn 24. febrúar, mættu tæplega 100 manns í stærðfræðipróf sem voru fyrstu lotupróf annarinnar. Meðfylgjandi mynd sýnir próftaka í aðalkennslurými skólans.
 

23.2.2005 : Síðasti kennsludagur í 1. lotu

Í dag 23. febrúar er síðasti kennsludagur 1. lotu og hefjast lotupróf á morgun fimmtudag með prófum í öllum stærðfræðiáföngum sem kenndir eru við skólann. Lesa meira
 
Lions_001

22.2.2005 : Lionsklúbbur Nesþinga færir skólanum gjöf

Síðasta þriðjudagskvöld komu nokkrir félagar úr Lionsklúbb Nesþinga í heimsókn og færðu skólanum mynd að gjöf. Hún var að sjálfsögðu þegin með þökkum og prýðir nú skrifstofu aðstoðarskólameistara.
 
Nemendur í leikhúsferð

20.2.2005 : Leikhúsferð á Híbýli vindanna

Síðastliðið föstudagskvöld eða nánar tiltekið 18. febrúar fóru nemendur úr fjórum íslenskuáföngum á uppfærslu Borgarleikhússins á Híbýlum vindanna eftir Böðvar Guðmundsson. Lesa meira
 
myndir-7jan_019

12.1.2005 : Gjafir í tilefni að vígslu skólahússins 7. janúar

Fjölmargar gjafir bárust skólanum í tilefni af vígslu skólahússins síðastliðinn föstudag, þann 7. janúar. Lesa meira
 
kvenfel-afhendir-nem-fsn

29.11.2004 : Gjöf frá Kvenfélaginu Gleym-mér-ei

Þriðjudaginn 23. nóvember sl. komu Kvenfélagskonur færandi hendi og færðu stjórn Nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga peningagjöf að upphæð 50.000 krónur. Lesa meira
 

17.11.2004 : Ánægjulegar niðurstöður úr viðhorfskönnun

Viðhorfskönnun var gerð meðal nemenda dagana 27. – 29. október 2004. 99 nemendur af 133 svöruðu könnuninni, sem er 74,4% svörun. Vert er þó að taka fram að 24 nemendur af þessum 133 eru óreglulegir nemendur í hlutanámi en án þeirra er svörunin 90,8%.

Lesa meira
 

29.10.2004 : Fleiri gestir

Í gær fimmtudag var gestkvæmt í skólanum. Þingmennirnir Magnús Stefánsson og Dagný Jónsdóttir kíktu í heimsókn, skoðuðu skólann og sáu nemendur að störfum. Eftir hádegið komu svo kennarar og starfsfólk Grunnskóla Grundarfjarðar og kynntu sér skólann og starfsemi hans. Færum við þeim öllum bestu þakkir fyrir komuna. 
 
armuli_1

27.10.2004 : Heimsókn

Miðvikudaginn 27. október fékk skólinn heimsókn frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Það voru þau Ólafur H. Sigurjónsson aðstoðar-skólameistari, Sigurlaug Kristmannsdóttir fjarnámsstjóri og Heiða Björk Sturludóttir kennari sem komu í heimsókn og hittu m.a. nemendur okkar sem stunda fjarnám frá FÁ. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
 
malverk-2

22.10.2004 : Gjöf frá bæjarstjórn Akraness

Á miðvikudaginn 20. október barst skólanum glæsileg gjöf frá bæjarstjórn Akraness. Fulltrúi bæjarstjórnarinnar, Jón Gunnlaugsson, færði skólanum fallegt málverk og á meðfylgjandi mynd sést Guðbjörg Aðalbergsdóttir skólameistari taka við gjöfinni. Við sendum bæjarstjórninni á Akranesi góðar kveðjur og þökkum kærlega fyrir okkur.
 

13.10.2004 : Heilsugæsluþjónusta

Á mánudagsmorgnum kl. 8:30-9:30 verða opnir tímar hjá Hildi Sæmundsdóttur hjúkrunarfræðingi í litla fundarherberginu í B-rýminu.

Lesa meira
 

7.10.2004 : Vel sóttur foreldrafundur

Á miðvikudagskvöldið 6. október var haldinn foreldrafundur í skólanum í fyrsta skipti. Fundurinn var vel sóttur því rúmlega 80 foreldrar mættu. Lesa meira
 
stjornin

17.9.2004 : Fyrsta stjórn nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga (NFSN)

Tilkynnt var um úrslit úr fyrstu nemendafélagskosningum í FSN í morgun, föstudag. Eftirfarandi nemendur verða við stjórnvölinn fyrsta veturinn og við óskum þeim til hamingju með kosninguna og væntum mikils af þeim: Lesa meira
 

16.9.2004 : Nemendafélag FSN er að fæðast!

Kosningar-1Fimmtudaginn 16. september voru haldnar nemendafélagskosningar í FSN í fyrsta skipti. Fjölmargir nemendur voru í framboði og var kosningaþátttaka góð.
 
TKG-setning

1.9.2004 : Skólinn settur við hátíðlega athöfn

Skólinn var settur við hátíðlega athöfn 30. ágúst að viðstöddu fjölmenni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ávarpaði samkomuna og óskaði skólanum heilla.

Lesa meira
 

25.8.2004 : Fyrsta skólasetning Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Mánudaginn 30. ágúst 2004 kl. 15:30 verður Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði settur í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn. Foreldrar og forráðamenn eru boðnir sérstaklega velkomnir og eru hvattir til að fylgja nemendum á skólasetninguna. Lesa meira
 

21.8.2004 : Matur á haustönn 2004

Kaffi 59 og Krákan bjóða nemendum áskrift að hádegismat. Lesa meira
 

17.8.2004 : Töfluafhending

Föstudaginn 27. ágúst kl. 10:00 verða stundatöflur afhentar í Sögumiðstöðinni við Grundargötu. Að því loknu, um kl. 11:00, munu nemendur hitta skólameistara og umsjónarkennara. Lesa meira
 
Opnun-lara

9.8.2004 : Menntamálaráðherra opnar vef Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Í dag, mánudaginn 9. ágúst 2004 opnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra vef Fjölbrautaskóla Snæfellinga, www.fsn.is .

Lesa meira
 
Loftraestikerfi

4.8.2004 : Loftræstikerfið í skólanum

Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af umfangsmiklu loftræstikerfi skólans, en myndin er tekin í kjallara hússins. Lesa meira
 

4.8.2004 : Kennarar á námskeiði

Dagana 9. til 13. ágúst verða kennarar skólans á námskeiði þar sem nýjar aðferðir í kennsluháttum verða þjálfaðar. Kennarar á námskeiðinu verða Lára Stefánsdóttir frá Þekkingu hf og Þórunn Óskarsdóttir, framhaldsskólakennari. Lesa meira
 
Skolahusid_23__juli_002_(3)

26.7.2004 : Skólabyggingin 23. júlí 2004

 

16.7.2004 : Veðurguðirnir hliðhollir FSN

Veður hefur verið með eindæmum gott undanfarna daga og rífandi gangur við byggingu Fjölbrautaskólans Lesa meira
 

16.7.2004 : Rúmlega 100 nemendur hafa staðfest skólavist

Rúmlega 100 nemendur hafa staðfest skólavist sína í Fjölbrautaskóla Snæfellinga á haustönn 2004. Undirbúningur gengur vel og gengið hefur verið frá ráðningu nær allra starfsmanna. Lesa meira
 

: Ræstingar

Fjölbrautaskóli Snæfellinga óskar eftir því að ráða starfsmann í ræstingar. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2009. Lesa meira
 

14.5.2008 : Kynningarfundur á Patreksfirði 15. maí 2008

Kynningarfundur í Framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellinga verður haldinn á Patreksfirði fimmtudaginn 15. maí kl. 20:00 Lesa meira
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur