Umsjón með nemendum
Umsjónarkerfi Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Hlutverk umsjónarkennara er m.a.:
- Að aðstoða nemendur við að gera námsferilsáætlun og er nemendum til ráðgjafar um ýmis mál er varða námsframvindu.
- Að aðstoða nemendur við val. Valtímabil er um það bil fjórar vikur á önn og kennarinn skilar af sér vali allra umsjónarnemenda sinna áður en því lýkur.
- Að fylgjast með ástundun og mætingum nemenda og hefur samband við foreldra/forráðamenn ef ástæða er til.
- Að hitta hvern nemanda einslega a.m.k. einu sinni á önninni.
- Að vera talsmaður umsjónarnemenda sinna þegar við á.
Upplýsingar um ástundun og mætingar nemenda yngri en 18 ára eru sendar til foreldra/forráðamanna einu sinni í mánuði, en þeir hafa einnig aðgang að ýtarlegri upplýsingum í gegnum upplýsingakerfi Innu sem aðgengilegt er af vef skólans, www.fsn.is.