Þjónusta
Skrifstofa
Opnunartími skrifstofu verður sem hér segir:
Mánudaga til fimmtudaga: 8:00-11:50 og 12:20 - 16:00
Föstudaga: 8:00-11:50 og 12:20-13:20
Starfsmenn á skrifstofu eru Guðrún Jóna Jósepsdóttir, skrifstofu- og fjármálastjóri og Lilja Magnúsdóttir, skólaritari.
Hlutverk skrifstofunnar er margvíslegt, s.s.:
Innheimta
Skrifstofan sér um innheimtu á síðbúnum innritunargjöldum, brautskráningargjöldum, gjöldum fyrir skápa, og fyrir fjarnámsáfanga.
Jöfnunarstyrkur og skólaakstur
Daglegur skólaakstur er frá Snæfellsbæ og Stykkishólmi. Nemendur frá þessum stöðum fá send eyðublöð sem þeir skila útfylltum á skrifstofunni og greiða staðfestingargjaldið. Greiðslan felur í sér skuldbindingu um að sækja um jöfnunarstyrk til Lánasjóðs íslenskra námsmanna ásamt umboði til að láta styrkinn renna til skólans til að standa straum af kostnaði við aksturinn. Staðfestingargjaldið er 12.000 kr. Greiðsla styrksins er háð því að viðkomandi nemandi skili sér til prófs í a.m.k. 12 námseiningum. Styrkurinn er greiddur um 10. janúar og 10. júní fyrir hvora önn fyrir sig. Frekari upplýsingar um jöfnunarstyrk er að finna í Jöfnun námskostnaðar og á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna (www.lin.is).
Skólaakstur - tímar á aksturleiðum
Forföll kennara
Skrifstofan sér um að koma upplýsingum um forföll kennara á framfæri.
Skápar
Nemendum stendur til boða að leigja geymsluskápa með aðstöðu til að hlaða tölvur. Leiga fyrir skáp er 3000 kr. fyrir veturinn, en af þeirri upphæð eru 1000 kr. skilagjald fyrir aðgangskort sem nemendur fá endurgreitt þegar þeir skila kortinu að vori.
Skólasókn og veikindi
Nemendum ber að sækja allar kennslustundir samkvæmt stundaskrá. Séu nemendur fjarverandi úr skóla gilda vissar reglur um hvernig taka skal á slíkum fjarvistum eftir því hver ástæða fjarvistanna er. Geti nemandi ekki sótt skóla vegna veikinda eða af öðrum ástæðum skal hann tilkynna forföllin daglega á skrifstofu skólans. Læknisvottorði skal skila inn ef veikindi vara 3 daga eða lengur.
Vottorð um skólavist
Skrifstofan gefur út vottorð um skólavist nemenda t.d. vegna orlofs, atvinnleysisbóta eða Tryggingastofnunar ríkisins sé þess óskað.
Stundatöflur kennara
Á skrifstofunni geta nemendur fengið aðgang að stundatöflum kennara.
Stundatöflur nemenda
Á skrifstofunni geta nemendur einnig fengið sínar eigin stundatöflur prentaðar út. Nemendur hafa aðgang að Innu (upplýsingakerfi framhaldsskólanna) og geta því prentað út töflurnar sínar sjálfir.
Varðveisla námsferla
Námsferlar nemenda eru allir varðveittir á rafrænu formi í upplýsingakerfi skólans (Innu) og geta nemendur fengið staðfest afrit þessara gagna, ef á þarf að halda t.d. við umsóknir í aðra skóla. Beiðnum um staðfest afrit skal beint til skrifstofu skólans.
Þýðingar prófskírteina/einkunna
Nemendur geta óskað eftir að fá prófskírteini/einkunnir þýddar yfir á erlend mál gegn greiðslu þýðingargjalds. Beiðnum um þýðingar skal beint til skrifstofu.
Auglýsingar
Skrifstofan sér um að hengja upp auglýsingar um ýmislegt sem tengist skólanum. Utanaðkomandi sem vilja auglýsa innan veggja skólans verða að fá leyfi hjá skrifstofunni.