Skólaráđ
Skólaráđ FSN
Í skólaráđi FSN veturinn 2009/2010 sitja:
Jón Eggert Bragason, skólameistari
Pétur Ingi Guđmundsson, ađstođarskólameistari
Unnur Sigmarsdóttir, kennari
Fanney Sumarliđadóttir, nemandi
Jón Viđar Pálsson, nemandi
Samkvćmt lögum um framhaldsskóla frá 2008 skal skólaráđ vera skólameistara til samráđs og ađstođar. Skólameistari er oddviti skólaráđs sem auk hans skal skipađ stađgengli hans og fulltrúum kennara og nemenda. Nánar er kveđiđ á um skipan skólaráđs í reglugerđ um skólaráđ viđ framhaldsskóla ţar sem segir eftirfarandi:
Kosiđ skal til skólaráđs viđ upphaf hvers skólaárs. Í ráđinu sitja tveir fulltrúar kennara, kjörnir á fyrsta almenna kennarafundi skólaársins. Nemendaráđ kýs tvo fulltrúa í skólaráđ. Ađstođarskólameistari og áfangastjóri sitja í skólaráđi.
Varđandi hlutverk skólaráđs segir:
Skólaráđ:
- er skólameistara til ađstođar og ráđgjafar um stjórn skólans,
- fjallar um starfsáćtlun skólans og framkvćmd hennar,
- fjallar um skólareglur, umgengnishćtti í skólanum, vinnu- og félagsađstöđu nemenda,
- veitir umsögn um erindi frá skólanefnd, almennum kennarafundi, nemendaráđi, einstaklingum, skólameistara og menntamálaráđuneytinu sé ţess óskađ,
- fjallar um mál sem varđa einstaka nemendur. Međ slík mál skal fariđ sem trúnađarmál.
Skólaráđ getur vísađ erindum sem ţađ hefur fjallađ um, ásamt umsögn, til skólanefndar, kennarafundar eđa nemendaráđs.
Rísi ágreiningur í skólaráđi skal leitast viđ ađ jafna hann og reyna ađ ná niđurstöđu án ţess ađ greiđa ţurfi atkvćđi. Komi til atkvćđagreiđslu um mál rćđur afl atkvćđa. Falli atkvćđi jöfn rćđur atkvćđi skólameistara.
Skólaráđ starfar á starfstíma skóla, en heimilt er ađ kalla ţađ saman á öđrum tíma beri brýna nauđsyn til. Skólameistari bođar til funda. Skylt er ađ kalla saman fund ef tveir eđa fleiri skólaráđsmenn óska ţess.
Halda skal gerđabók um skólaráđsfundi og skulu fundargerđir liggja frammi í skólanum.