Skólareglur

Skólasóknarreglur

Síðast breytt: 20. ágúst 2009

  • Nemendum í reglulegu námi ber að mæta í allar fastar kennslustundir og vinnustofur samkvæmt stundatöflu, og verkefnatíma eftir samráði við kennara. Fylgst verður vel með mætingu nemenda og eftirfarandi viðurlögum beitt ef mætingin er slök:
    • Mætingahlutfall í föstum kennslustundum og vinnustofum verður skoðað einu sinni í mánuði.
    • Þeir nemendur sem eru með minna en 80% í mætingahlutfall eru kallaðir í viðtal til umsjónarkennara eða námsráðgjafa til að gefa skýringar á lakri mætingu. Þeir sem ekki hafa frambærilega skýringu á reiðum höndum fá skriflega áminningu sem einnig er skráð í athugasemdir.
    • Nemendur sem eru með mætingarhlutfall undir 80% tvo mánuði í röð, án frambærilegrar skýringar, fá aðra skriflega áminningu sem einnig er skráð í athugasemdir.
    • Sé mætingarhlutfall undir 80% í þriðja skiptið fær nemandi brottrekstrarbréf, mál hans er tekið fyrir í skólaráði og honum boðið að nýta sér rétt sinn til andmæla með því að skrifa bréf til skólaráðs.
  • Kennarar skrá viðveru nemenda í hverjum föstum tíma og í vinnustofum.
  • Nemendur skulu stunda námið af kostgæfni og skila verkefnum á réttum tíma.
  • Séu nemendur fjarverandi úr skóla gilda vissar reglur um hvernig taka skal á slíkum fjarvistum eftir því hver ástæða fjarvistanna er. Geti nemandi ekki sótt skóla vegna veikinda eða af öðrum ástæðum skal hann tilkynna forföllin daglega á skrifstofu skólans. Læknisvottorði skal skila inn til skrifstofu ef veikindi vara lengur en tvo daga.
  • Sé ástundun og verkefnaskilum nemenda ábótavant tilkynnir kennari það til umsjónarkennara. Umsjónarkennari ræðir við nemandann og foreldra hans ef hann er yngri en 18 ára og reynir að grafast fyrir um það hvers vegna hann stundar ekki námið eins og til er ætlast. Brjóti nemandi skólasóknarreglur ítrekað getur hann átt á hættu að vera vísað úr skóla.
  • Ef nemendur eru ósáttir við meðferð sinna mála geta þeir vísað málinu til skólaráðs og sótt skólann þar til niðurstaða skólaráðs er fengin.
  • Skólaráð getur í sérstökum tilvikum veitt undanþágu frá reglum þessum.

Umgengnisreglur

Síðast breytt: 19. ágúst 2009

  • Nemendur skulu sýna góða umgengni í skólanum og á lóð hans.
  • Spjöll sem nemendur kunna að vinna á húsnæði skólans eða öðrum eigum hans ber þeim að bæta að fullu.
  • Í matsalnum má spila tónlist og vera í tölvuleikjum, en það er bannað annars staðar í húsinu, nema það sé skilgreindur þáttur í námi og kennslu.
  • Nemendur skulu gæta þess vandlega að farsímar þeirra valdi ekki truflun á vinnufriði í skólanum.
  • Matar og drykkjar má neyta í matsalnum en ekki annars staðar í húsinu. Þó er gerð undantekning með drykki í lokuðum ílátum.
  • Öll meðferð áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð í skólanum og á samkomum og ferðalögum á vegum hans.
  • Reykingar og önnur tóbaksnotkun er bönnuð í skólanum og á lóð hans.
  • Auglýsingar varðandi skólahald og félagslíf nemenda eru leyfðar á veggjum skólans. Utanaðkomandi sem vilja auglýsa innan veggja skólans verða að fá leyfi hjá skrifstofunni.
  • Ítrekuð brot á reglum þessum geta leitt til brottrekstrar úr skóla.

Tölvureglur

Síðast breytt: 9. janúar 2007

Nemendur fá aðgang að internetinu og þráðlaust tölvunet er til staðar í skólanum. Skólinn er tengdur FS-neti sem er háhraðanet fyrir framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar á Íslandi. Nemendum er bent á að lesa reglur FS-nets á http://www.fsnet.is undir Reglur FSnets. Til viðbótar setur skólinn eftirfarandi reglur um notkun netsins og þær gilda hvort sem notaðar eru eigin fartölvur nemenda eða tölvur skólans:

  • Tölvubúnaður Fjölbrautaskóla Snæfellinga er eign skólans og hann á aðeins að nota í viðfangsefni sem tengjast skólastarfinu svo sem við kennslu, kynningar eða á annan hátt er samræmist markmiðum skólans.
  • Notendanafni og lykilorði notenda er óheimilt að deila með öðrum og nemandi má einungis nota sitt notendanafn á tölvuneti skólans. Handhafi notendanafns er ábyrgur fyrir allri notkun þess.
  • Nemanda er óheimilt að setja upp hugbúnað á tölvur skólans eða á neinn hátt breyta uppsetningu tölvubúnaðar.
  • Nemendum er óheimilt að afrita hugbúnað, tónlist, kvikmyndir eða önnur gögn sem eru vernduð höfundarrétti nema ef fyrir liggur leyfi eigenda.
  • Nemendum er bannað að senda óviðeigandi efni með tölvum skólans hvort heldur er í tölvupósti, á vefsíður eða með öðrum verkfærum. Hér er átt við fjölsendingar (keðjubréf, ruslpóst), ósiðlegt efni, og annað sem getur verið særandi eða meiðandi.
  • Nemendum er óheimilt að fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða að afrita nokkur gögn sem eru á tölvuneti skólans nema eigin gögn.
  • Óheimilt er að nota net skólans til að reyna að komast ólöglega inn á netsvæði eða tölvur annarra.
  • Óheimilt er að vera með matvæli í nálægð við tölvubúnað skólans.

Ítrekuð eða alvarleg brot á reglum þessum geta leitt til brottvísunar og brot sem varða við landslög verða kærð til lögreglu.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur