Sjálfsrýni kennara

Sjálfsrýni kennara

Sjálfsrýni kennara - haustönn 2008

Skipulag á sjálfsrýni kennara við FSN - haustönn 2008
Umsjón: Berglind Axelsdóttir, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir og Sólrún Guðjónsdóttir

Markmið: Ætlunin er að skoða kennsluhætti sem kennarar nota. Hvernig þeir verja tímanum (kennsluaðferðir, vikuáætlanir, þemaáætlanir, nýjungar) og hvernig námsmati er háttað í áföngunum. Aðferðin sem notuð verður er Action research eða starfendarannsókn. Kennurum er skipt í þrjá hópa og eru hóparnir hugsaðir sem rýnihópar. Þeir munu skoða sína eigin kennsluhætti og námsmat ásamt því að fylgjast með hjá öðrum (e. Peer observations + feedback). Einnig munu kennarar ígrunda eigin kennsluhætti og skrá niðurstöður. Þessi vinna er hugsuð sem hluti af sjálfsmati skólans. Ástæða þess að ætlunin er að skoða þessa þætti er úttektarskýrsla sem kom út 2007 þar sem gerð var úttekt á starfsemi skólans fyrstu árin. Eitt af því sem gerðar voru athugsemndir við var að námsmat hefði ekki fylgt breyttum kennsluháttum.

Framkvæmd: Kennurum skipt upp í hópa tilviljanakennt. Hóparnir hittast hálfsmánaðarlega veturinn 2008-2009 á fundum. Hópstjórar halda leiðarbók um framkvæmd starfendarannsóknarinnar, skrifa fundargerðir á hverjum fundi um það sem þar kemur fram og taka einstaklingsviðtöl við tvo sem hafa starfað frá upphafi skólans og tvo sem hafa styttri starfsreynslu við skólann. Kennsluáætlunum verður safnað saman og þær skoðaðar til þess að sjá hvaða námsmatsaðferðir er verið að nota. Ætlunin er að gera samantektarskýrslu um áramót og aftur að vori.




Sjálfsrýni kennara - haustönn 2007

Haustið 2007 kom upp umræða um gagnasöfnun hjá sjálfsmatshópi FSN. Efasemdir voru um gagnsemi þess að safna saman tölum um einkunnir, fall og meðaleinkunnir í áföngum skólans. Þess í stað var ákveðið meira gagn væri í því að þróa sjálfsrýni kennara. Hópurinn ákvað því að búa til vettvang fyrir kennara skólans fyrir sjálfsrýni í kennsluumsjónarkerfinu Angel þar sem kennarar ná sér í eyðublað, sem samið var af sjálfsmatshópi til að taka saman hvernig önnin hafi gengið í hverjum áfanga fyrir sig. Í annarlok komu svo kennarar saman og miðluðu af reynslu sinni, hvað hafi gengið vel og hvað hefði mátt ganga betur.  Það er svo ætlunin að þessi háttur verði viðhafður hér eftir, að kennarar hafi svona vettvang til að setjast niður og bera saman sína sjálfsrýni og annarra, þannig að hugmyndir um breytingar verði ræddar og  þá framkvæmdar næstu önn.  

Þessi breyting var borin undir kennarafund áður en hún var framkvæmd og vakti hún almennt ánægju hjá kennarahópnum.  Eftir að kennarar höfðu hist í hópum og borið sig saman voru þeir spurðir um álit á þessu formi sjálfsmats og töldu allir að þetta væri mjög til góðs.  Mismunandi  var hvað kennarar voru tilbúnir að opinbera sína sjálfsrýni en fannst sjálfsagt að taka þátt í umræðum kennara við annarlok. 

Eins og fyrr segir er samantekt umræðna í höndum hvers kennara.  Þó var farið fram á við hópana að skila helstu niðurstöðum munnlega á kennarafundi, sem var gert í byrjun janúar.  Þeir sem tóku þátt í þessum umræðum voru sammála að þessi framkvæmd væri gagnleg, og sú vinna sem færi í að fylla út samantektina um hvern áfanga væri gagnleg til að halda utan um það hvernig hefði gengið.

Þeir kennarar sem tóku þátt í þessari vinnu voru almennt mjög ánægðir og töldu að þessi vinna væri til þess fallin að bæta kennslu í skólanum, en væri einnig nauðsynlegur vettvangur fyrir umræður kennara um hvernig væri hægt að bæta skólastarfið, með áherslu á kennslu hvers og eins kennara.

Þegar farið er í að gera eitthvað nýtt er ljóst að einhverjir hnökrar verða á framkvæmd.  Það sem sjálfsmatshópur þarf helst að skoða eru hlutir eins og:

  • Þátttaka og virkni kennara
  • Aðkoma sjálfsmatshóps
  • Val á dagsetningu fyrir umræður
  • Samantekt og skráning á niðurstöðum

 

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur