Upplýsingatækni
UTN1024 Notkun upplýsinga og tölva í námi
Áfangamarkmið
Nemandi
Tölvunotkun
þekki staðarnet skólans og þann hugbúnað sem honum stendur til boða
geti beitt þeim hugbúnaði, sem er til í skólanum, í réttu samhengi við annað nám í skólanum
geti sjálfur aflað sér þekkingar um hvernig hagnýta má upplýsingatækni í tengslum við nám sitt
geti sett fram þá þekkingu, sem hann aflar sér í námi sínu, á tölvutækan hátt, s.s. í gagnasafni, með myndrænni framsetningu tölfræðilegra gagna, á margmiðlunarformi með tónlist, myndum, kvikmyndum og stiklutexta
geti rætt um verkfæri og viðfangsefni upplýsingatækninnar á réttri íslensku
Upplýsingalæsi
sýni ábyrgð og siðvit í vinnu sinni á staðarneti skólans sem og Interneti
geti aflað sér upplýsinga um fjölbreytt efni eftir margvíslegum leiðum
þekki helstu atriði í sögulegri þróun upplýsingamála