UTN1024 Notkun upplýsinga og tölva í námi
Áfangalýsing
Markmið áfangans er að tryggja að nemandinn geti notað fjölbreyttan hugbúnað og upplýsingar á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Áfanginn er fyrir nemendur á fyrstu önn í framhaldsskóla. Í áfanganum verður farið yfir tölvubúnað og hvernig best má hagnýta hann í námi við skólann. Farið verður yfir hvernig nemandinn getur sett fram eigið efni á neti skólans og kynntar leiðir til að hagnýta upplýsingatækni í almennu námi. Fjallað verður um almenn atriði upplýsingalæsis, m.a. verður farið yfir gögn um upplýsingaöflun, útgáfuform upplýsinga, bókasöfn, handbækur, tölvusamskipti, mat á gæðum og áreiðanleika upplýsinga o.s.frv. Áfanginn getur verið samstarfsverkefni tölvukennara og bókasafns- og upplýsingafræðings.
UTN 103 Notkun upplýsinga og tölva í námi

Lesa meiraUTN 123 Upplýsingar og tölvur - Photoshop
Áfangalýsing
Photoshop er yfirburðaforrit til alhliða myndvinnslu, myndlagfæringar, litleiðréttingar og myndasamsetningar fyrir skjá- og prentmiðla, skapandi myndvinnslu og grafískrar hönnunar. Farið er í helstu grunnþætti, áhöld, tæki og valmyndir forritsins svo að þátttakendur öðlist skilning á myndvinnslu í tölvum og kynnist möguleikum forritsins. Farið verður í litgreingarhugtök. Markmiðið er að þú þekkir umhverfi Photoshop og að þú getir unnið með myndir og texta.
UTN 133 Upplýsingar og tölvur - Freehand
Teikniáfangi í Freehand og Flash þar sem kennd eru undirstöðuatriði í margmiðlun, s.s. teiknimyndagerð, auglýsingar og vefsíður.