Uppeldisfræði

UPP 203 Uppeldismál á Íslandi

Undanfari: UPP 103

Áfangamarkmið
Nemandi
Markmið og leiðir í uppeldis- og menntunarstarfi á Íslandi
þekki helstu markmið grunn- og framhaldsskóla eins og þau eru sett fram í opinberum gögnum um þessar stofnanir
kynni sér, sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur, hugmyndafræði og starfsemi mismunandi uppeldis- og/eða menntastofnana á Íslandi
þekki umræðuna um hlutverk stofnana, forsjármanna og almennings í uppeldi barna/unglinga
beri saman ólíka hugmyndafræði, markmið og leiðir í uppeldi og menntun og ræði um kosti þeirra og galla
finni hvaða stofnanir í samfélaginu hafa eftirlit og umsjón með uppeldi og menntun barna og unglinga á Íslandi
leiti upplýsinga, vinni á gagnrýninn hátt úr aðfengnum gögnum og tjái niðurstöður sínar munnlega, skriflega eða í öðru formi sem nemandinn hefur valið í samvinnu við kennara
Kynhlutverk
fjalli á gagnrýninn hátt um hugtökin kynhlutverk, kynferði og jafnrétti í tengslum við uppeldisaðferðir og skipulag skóla
þekki niðurstöður rannsókna á áhrifum uppeldis og skóla á kynferði og hugmyndir um kynhlutverk
kynni sér lög um jafnrétti og jafnréttisfræðslu og þekki þær stofnanir sem eiga að fylgjast með hvort jafnréttislögum sé fylgt í uppeldi og menntun
Sorg, viðbrögð við áföllum
geri sér grein fyrir skilningi barna á dauðanum eftir aldri og þekki helstu einkenni sorgarviðbragða barna og unglinga
viti hvernig helst er hægt að styðja barn/ungling í sorg og hvert er hægt að leita til að aðstoða barn sem hefur orðið fyrir áfalli
þekki helstu leiðbeiningar sérfræðinga um hvernig ræða skuli við börn um tilfinningalega viðkvæm málefni eins og dauðann
þekki helstu leiðbeiningar sérfræðinga um þátttöku barna í athöfnum eins og jarðarförum og kistulagningu
Skilnaður
geri sér grein fyrir hvernig skilnaður fer fram og þekki lagalegan rétt barns þegar foreldrar þess skilja
geri sér grein fyrir hver séu algeng áhrif skilnaðar foreldra á börn eftir aldri þeirra og kyni
komist að hvað foreldrar og/eða aðrir í nánasta umhverfi barns geta gert til að draga úr neikvæðum áhrifum skilnaðar á börn
geti fjallað um áhrif forræðisdeilna á börn og hver sé réttur barna varðandi umgengni við báða foreldra
viti hvert leita skuli upplýsinga um áhrif skilnaðar, aðstæður einstæðra foreldra og lagalegan rétt barna
kynni sér hvaða stofnanir í samfélaginu sinna málaflokknum „skilnaður og börn“, hvort sem um er að ræða almennar upplýsingar, úrskurð í forræðisdeilum eða ráðgjöf við lausn vandamála
Einelti
skilgreini hugtakið einelti
greini hvar einelti fer helst fram
kynni sér áhrif eineltis fyrir þolanda þess
þekki helstu niðurstöður rannsókna á gerendum eineltis
þekki leiðir til að koma í veg fyrir einelti og viti hvaða leiðir eru helst farnar í uppeldisstofnunum á Íslandi
skoði eigin þátt í einelti
Ofbeldi
skilgreini hugtakið ofbeldi og geti gert grein fyrir mismunandi tegundum ofbeldis (líkamlegu, andlegu og kynferðislegu)
geri sér grein fyrir áhrifum vanrækslu og ofbeldis á börn
kynni sér á hvaða hátt lög vernda börn
viti hvert hægt er að leita ef grunur er uppi um vanrækslu eða ofbeldi gegn barni og hver tilkynningaskylda er samkvæmt lögum
kynni sér hvaða stofnanir í samfélaginu sinna börnum sem búa eða hafa búið við vanrækslu og/eða ofbeldi
öðlist innsýn í hvernig sé hægt að aðstoða barn sem orðið hefur fyrir ofbeldi og/eða verið vanrækt

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur