Uppeldisfræði
UPP 103 Almenn uppeldis- og menntunarfræði
Áfangamarkmið
Nemandi
Hugmyndafræði, markmið og leiðir
geti útskýrt hverjir eru helstu áhersluþættir innan uppeldis- og menntunarfræði, hver séu tengsl greinarinnar við aðrar fræðigreinar og hverjar helstu rannsóknaraðferðir
viti hvað felst í hugtakinu uppeldi og hvert sé gildi uppeldis fyrir einstakling og samfélag
þekki mismunandi viðhorf til mannlegs eðlis og verði sér þess meðvitandi hvernig viðhorfin leiða til ólíkra hugmynda um gildi uppeldisaðferða
geti í stórum dráttum gert grein fyrir þróun formlegs uppeldis (leikskóla og skóla) í Evrópu síðustu aldir
geti fjallað af gagnrýni um hugmyndafræði og uppeldisaðferðir nokkurra viðurkenndra uppeldisfræðinga
geti einn eða í samvinnu við aðra sett fram hugmynd að uppeldisstofnun, t.d. leikskóla, þar sem fram koma rökstuddar hugmyndir að uppeldisaðferðum og áherslum í uppeldisstarfi
þekki niðurstöður valinna rannsókna á uppeldisaðferðum foreldra
geri grein fyrir og ræði af gagnrýni um uppeldisaðferðir og sýni fram á með dæmum að hann hafi skilning á tilteknum uppeldisaðferðum
kynni sér helstu markmið leikskóla eins og þau eru sett fram í opinberum gögnum
kynni sér mismunandi hugmyndafræði og starfsemi leikskóla á Íslandi
fari í heimsókn í að minnsta kosti einn leikskóla og ræði við leikskólakennara um markmið og hugmyndafræði leikskólans og hvernig gengur að koma hugmyndafræðinni í framkvæmd
Þroskaferill barna
öðlist innsýn í kenningar um þróun sjálfsmyndar
geri sér grein fyrir kenningum um hvernig hugsun breytist með aldri og þekki kenningar um vitsmunaþroska barna
geri sér grein fyrir hvernig félagsleg samskipti barna þróast með aldri og þekki kenningar um félagsþroska og tilfinningalíf barna
þekki helstu kenningar um siðgæðisþroska barna
Samskipti
geri sér grein fyrir hvað felst í jákvæðum og uppbyggjandi samskiptum og sýni fram á færni í samskiptatækni, t.d. í hlutverkaleik
sé meðvitaður um viðhorf uppeldisfræðinga til hróss og gagnrýni
þekki og kunni að nota ýmsar aðferðir til að örva barn til að tjá sig, t.d. virka hlustun; viti við hvernig aðstæður æskilegt er að nota virka hlustun og hvert sé gildi þess
geri greinarmun á ég-boðum og þú-boðum og þekki skoðanir uppeldisfræðinga á hagnýtu gildi slíkra boða
sýni fram á færni í notkun ég-boða í samskiptum
sýni fram á að hann hafi vald á viðurkenndum leiðum til að leysa árekstra í samskiptum
sé meðvitaður um og geri sér grein fyrir gildi líkamsmáls í samskiptum við börn/unglinga
Leikur
geti fjallað um gildi leikja fyrir alhliða þroska barna og kynni sér nokkrar kenningar um leik
þekki algenga flokkun leikja og geti t.d. gert grein fyrir hvað einkennir hreyfileiki, sköpunarleiki, hlutverkaleiki (ímyndunarleiki) og regluleiki
þekki til þróunar leikja með tilliti til aldurs barna og geti fjallað um samskipti barna í leik
öðlist nokkra færni í að skoða umhverfi barna og meta með tilliti til möguleika til leikja
öðlist færni við að skipuleggja leiki fyrir börn í samvinnu við aðra nemendur
Listir og sköpunarþörf, barnamenning
geri sér grein fyrir gildi sköpunar fyrir alhliða þroska barna og unglinga
lýsi þróun barnateikninga og skoði teikningar barna með tilliti til þess hvar þau eru stödd í þeirri þróun
geri sér grein fyrir gildi þess að búa vel að börnum þannig að sköpunarþörf þeirra fái notið sín á hvaða sviði sem er
skoði valda þætti í menningu Íslendinga sem sérstaklega eru ætlaðir börnum, t.d. barnaefni í sjónvarpi eða útvarpi, barnabækur, teiknimyndasögur eða tölvuleiki