TÖL 102 Ritvinnsla og töflureiknir I
Grunnáfangi á tölvubraut. Í þessum áfanga er kennt að nota Windows stýrikerfið, ritvinnslu í Word og töflureikninn Excel. Lesa meira
TÖL 103 Inngangur að forritun
Áfangalýsing
Farið er í helstu þætti í sögu og þróun nútímaforritunar. Í áfanganum munu nemendur fá undirstöðuþjálfun í forritun í hlutbundnu forritunarmáli. Lögð verður áhersla á að nemendur temji sér öguð og viðurkennd vinnubrögð við greiningu, hönnun og prófun tölvuforrita. Sérstök rækt verði lögð við að nemendur átti sig á hlutverki stýrikerfa við hönnun hugbúnaðar, m.a. við hönnun staðlaðs notendaviðmóts.
Lesa meiraTÖL 113 Gagnasafnsfræði
Áfangalýsing
Farið er í undirstöðuþætti gagnasafnsfræða, s.s. skipulag og vensl gagnasafna og fyrirspurnarmál. Einnig verður fjallað um öryggi gagnasafna og lög um tölvugögn. Farið verður í helstu þætti við greiningu og hönnun gagnasafna. Áfanginn er valáfangi og getur einnig hentað nemendum á félagsfræðabraut. Nemendur munu hanna eigið gagnasafn með einindavenslalíkönum, skipuleggja tögun gagna og lyklun. Síðan setja þeir gagnasafnið upp og beita fyrirspurnarmáli á gagnasafnið.
Lesa meiraTÖL 132 Tölvugrunnur
Farið er í hvað tölva er og hvernig umgangast skuli hana. Hlutverk og virkni helstu hluta vélbúnaðarins og fylgihluta tölvunnar eru skoðaðir. Farið er í grunnatriði stýrikerfanna Windows, Dos og Unix. Kynnt eru helstu talnakerfi og breytingar á milli þeirra. Lögð er áhersla á verkefnavinnu til að auka færni og sjálfstæði nemandans. Lesa meira
TÖL 203 Hlutbundin forritun og netkerfi
Áfangalýsing
Nemendur greina, hanna og forrita forrit með hlutbundnum aðferðum, klasahönnun. Kenndar verða helstu aðferðir við gagnaskipan. Farið verður í mismunandi uppbyggingu stýrikerfa og vélbúnaðar. Einnig verður farið í uppbyggingu og gerð myndefnis.
Lesa meiraTÖL 212 Töflureiknir II
Framhaldsáfangi í notkun Microsoft EXCEL sem er einn öflugasti töflureiknir sem í boði er og fer notkun hans sífellt vaxandi hjá nær öllum fyrirtækjum og stofnunum landsins. Forritið hefur einnig innbyggða möguleika á öflugri grafík og hægt er að nota það sem gagnagrunn. Í þessum áfanga er lögð áhersla á notkun þess við áætlanagerð og stjórnun fjármála, svo sem útreikninga á vöxtum, innri vöxtum, arðsemi og að núvirða og fjarvirða. Einnig tekin fyrir nokkur atriði úr tölfræði og æfð notkun tölfræðifalla auk annarra algengra reiknifalla. Lesa meira
TÖL 222 Ritvinnsla II
Framhaldsáfangi í notkun Microsoft WORD. Word er eitt öflugasta ritvinnsla sem finnst á tölvumarkaði nú á tímum og fer notkun hans mjög vaxandi hjá nær öllum fyrirtækjum og stofnunum landsins. Þjálfun og kunnátta í notkun WORD hefur því mjög hagnýtt gildi. Nemendur þurfa að sýna sjálfstæð vinnubrögð. Farið er í nákvæmari bréfauppsetningar og samþættingu skjala og ýmissa forrita. Lesa meira
TÖL 303 Verkefnaáfangi
Áfangalýsing
Áfanginn á að gefa nemandanum tækifæri til að fá innsýn í ýmsa þætti tölvufræða. Nemendur velja sér ákveðið verkefni á sviði tölvufræði í upphafi áfangans. Æskilegt er að verkefnin bjóði upp á töluverða breidd bæði hvað varðar þekkingu og færni sem nemandinn verður að tileinka sér til að ljúka áfanganum með einhverri sýnilegri afurð, t.d. rannsóknarskýrslu, hermilíkani eða forritanlegu kerfi sem getur numið og brugðist við boðum úr umhverfinu.
Verkefni nemenda geta m.a. fjallað um innviði og uppbyggingu tölvu; gerð rökrása; hvernig tölvan vinnur með og umbreytir merkjum í upplýsingar og þekkingu; hvernig tölvur geta numið og brugðist við merkjum úr umhverfinu, hvort heldur það er til mælinga og rannsókna eða við gerð forritanlegra sjálfa og þjarka; uppbyggingu netkerfa og hvaða stærðfræðileg og eðlisfræðileg atriði liggja þar að baki.
Lögð er áhersla á að nemandinn sýni sjálfstæði og frumkvæði í náminu og þá ekki síst í að hagnýta sér þekkingu af ýmsum sviðum, t.d. þekkingu í eðlisfræði og stærðfræði, við úrlausn verkefna. Kennslan verður þannig jöfnum höndum fræðileg og verkleg, auk þess að byggjast bæði á sjálfsnámi nemandans og innlögn kennarans.
Lesa meiraTHL 212 Tölvustudd hönnunar- og hugmyndavinna
Áfangalýsing
Lögð er áhersla á að vinnan, sem fram fer í þessum áfanga, sé hliðstæð þeim áföngum sem eru í boði á sömu önn. Lögð er megináhersla á hönnunar- og hugmyndavinnu varðandi munsturgerð, tískuteiknun, þrívíddarteikningu/rýmisteikningu, sniðútfærslur, sniðbreytingar út frá vaxtarlagi, sniðbreytingar út frá hugmyndum, hvernig snið er lagt út á efni eftir efnisbreidd og breytingu sniða í mismunandi stærðir (gradering). Auk þess er mikilvægt að nemendur geti notað tölvu til upplýsingaöflunar og kynningar á eigin hönnun. Áhersla er lögð á að nemendur geti tileinkað sér allar þær nýjungar sem tölvuvinna býður upp á hverju sinni og að áfanginn mótist af þeim nýjungum. Verkefnavinna, vettvangsheimsóknir, kynning og sýning á verkum nemenda í tengslum við námsefni og verkefnaval.
Lesa meira